Aðstaðan

Öll aðstaða til náms, íþrótta og félagslífs er mjög góð í Framhaldsskólanum á Laugum. Heimavistir skólans eru góðar en á tveimur af þremur heimavistarhúsum eru baðherbergi inni á hverju herbergi sem eru rúmgóð og þægileg. Það ætti enginn að vera svikinn af aðstöðunni á Laugum!
Þá eru það sérstök forréttindi að hafa alla þá aðstöðu sem skólinn býður upp á en vera samt sem áður úti í sveit í fallegri náttúru. Óhætt er að segja að aðstaðan sé til staðan og er það að miklu leyti undir nemendum hvers vetrar komið hvernig hún er nýtt. Aðstaða til íþróttaiðkunar er frábær og nemendum að kostnaðarlausu!
Húsakostur
Framhaldsskólinn á Laugum hefur yfir miklum húsakosti að ráða en skólinn er starfræktur í sjö stórum húsum sem eru samtals yfir 6.500 fermetrar!
- Hjarta skólans er í Gamla skóla, aðal skólahúsnæðinu sem reist var árið 1924. Þar eru vinnustofur og heimasvæði nemenda, mötuneyti, bókasafn, þvottahús, félagsaðstaða nemenda, nemendaverslun, skrifstofur og vinnuaðstaða kennara. Undanfarin ár hafa verið gerðar miklar breytingar á húsinu með það að markmiði að nýta þetta gamla hús á sem bestan hátt en nýjar áherslur í námi hafa gert kröfur fyrir breytta aðstöðu.
- Í Dvergasteini eru kennslustofur þar sem fagtímar eru kenndir. Þar er einnig heimavist, tvær kennaraíbúðir og aðstaða fyrir verklega smíðakennslu
- Tröllasteinn er heimavist sem reist var árið 2000
- Fjall er heimavist sem var endurnýjuð árið 2000. Þar er einnig kennaraíbúð og aðsetur sjónvarpsstöðvarinnar Ísafoldar
- Álfasteinn hefur nú fengið nýtt hlutverk en kennslustofur hans hafa verið leigðar út og þar er bæði skrifstofuaðstaða og háskólasetur. Þar er ein kennaraíbúð auk kennslueldhúss
- Þróttó, gamla íþróttahúsið, er kvikmyndahús en salurinn var gerður upp af nemendum skólans árið 2005 og er hann notaður við margskonar tilefni, svo sem fundi, fyrirlestra eða skemmtanir. Hljómsveit skólans hefur æfingaraðstöðu í húsinu.
- Íþróttahús skólans er glæsileg bygging með öllu sem tilheyrir starfsemi þess. Glæsileg útisundlaug var vígð 8. júlí 2005. Sundlaugin er tengd við íþróttahús skólans. Læknamóttaka er í íþróttahúsiu en læknar á Húsavík hafa viðtalstíma þar einu sinni í viku og auk þess starfar þar hjúkrunarfræðingur
