Félagsaðstaða
|
Félagsaðstöða nemenda hefur verið komið fyrir í gömlu innisundlauginni í Gamla skóla og hefur hún hlotið nafnið Laugin. Þar er skjávarpi og heimabíókerfi, sófar og dýnur og sitthvað fleira. Nemendur á þriðja ári sem stefna á utanlandsferð reka sjoppu í gamla kvennabúningsklefanum við hlið Laugarainnar. Þróttó er meira en kvikmyndahús. Þar er hægt að halda tónleika eða fyrirlestra og þar halda nemendur stærri fundi. Þar er aðstaða fyrir nemendur til að æfa tónlist, leiklist eða hvers konar uppákomur sem þeir vilja ráðast í. Í Gamla skóla er kaffistofa nemenda þar sem hægt er að setjast niður yfir kaffibolla og ræða mál heimsins. |
