Þróttó

Þróttó

Þróttó er kvikmyndahús, fyrirlestrar-, fundarsalur- eða samkomusalur skólans. Þar hefur hljómsveit skólans einnig haft æfingaaðstöðu.

Árið 1945 gaf Helgi Benediktsson kaupmaður í Vestmanneyjum Laugaskóla vélar til kvikmyndasýninga. Sýningar hafa verið á Laugum allar götur síðan þó vélakosturinn hafi verið endurnýjaður.

Í október 2005 réðst Byggingafélagið Ófeigur, skipað athafnadrengjum úr röðum nemenda skólans, í það að verk að endurbyggja kvikmyndasal Þróttó. Byggingaframkvæmdir stóðu yfir í rúman mánuð og var formleg opnun haldin í tengslum við afmælishátíð skólans sem haldin var 30. október 2005 en um það leyti voru áttatíu ár liðin frá því að kennsla hófst fyrst í Laugaskóla. Stólum í salnum var fækkað og bilið milli raða breikkað. Skipt var um teppi og sviðinu breytt. Þverveggur var byggður efst í salnum svo að ekki berist birta inn í salinn þegar hann er opnaður. Gömlu sýningarvél sem var á annarri hæð var svo sett í búr gegnt dyrunum inni í salinn.

Skólinn sér um rekstur á Laugabíói en bíóstjóri er Kristján Guðmundsson.

 
Félagsaðstaða