Heimavistirnar
|
Framhaldsskólinn á Laugum er heimavistarskóli en meirihluti nemenda skólans býr á heimavist. Heimavistin er í þremur húsum, Fjall, Tröllasteinn og Dvergasteinn og hægt er að velja milli eins eða tveggja manna herbergja. Að búa á heimavist er lífsreynsla sem aldrei gleymist! Í herbergjum á heimavistum er netsamband, bæði þráðlaust og með snúru, og þá eru símar í Fjalli og Tröllasteini auk þess sem þar eru einnig baðherbergi með sturtu inni á hverju herbergi. Á kvöldin eru húsbændur nemendum innan handar á heimavistinni. Fylgst er með umgengni á herbergjum á tveggja vikna fresti, svona til að passa upp á að menn gleymi sér ekki og láti herbergin sín verða að einhverri svínastíu! Hægt er að smella á nöfn vistanna fyrir nánari upplýsingar um hverja vist. |

