Fjall

Fjall

Fjall er heimavist með 15 herbergjum á þremur hæðum. Herbergin eru tveggja manna og eru 17,7-21,3 fermetrar fyrir utan eitt sem er þriggja manna og er 35,9 fermetrar að stærð - ekki að ástæðulausu sem það herbergi er gjarnan nefnt "svítan" í daglegu tali!

Á öllum herbergjum er baðherbergi með sturtu. Parket er á gólfum og flísar á baðherbergjum.

Sími er í hverju herbergi auk tengimöguleika fyrir sjónvarp og tölvu. Þá næst þráðlaust net í öllum herbergjum.

  • Sameiginleg setustofa er á miðhæðinni.
  • Í húsinu er ein kennaraíbúð.
  • Sjónvarpsstöðin Ísafold hefur aðsetur í húsinu.
  • Húsið var endurinnréttað veturinn 1999-2000

Smelltu hér til að skoða verðdæmi á gjaldskrá 2011-2012