Reglur heimavistar og skóla
Vistarbúar skulu ávallt ganga hljóðlega um og mega aldrei raska ró og friði hússins með hávaða og slæmri umgengni. Íbúum ber að sýna hver öðrum fullkomna tillitsemi og gæta fyllstu kurteisi hver gagnvart öðrum og starfsmönnum skólans.
1. Nemendum ber að ganga vel og þrifalega um herbergi sín og hús skólans. Óheimilt er að flytja húsgögn milli herbergja. Óheimilt er að taka húsgögn úr setustofum og skólastofum til notkunar í herbergjum. Heimilt er að hafa næturgest um helgar, en sækja verður um leyfi til þess fyrir hádegi á föstudegi. Skólameistari eða staðgengill hans getur veitt undanþágu frá þessari reglu í sérstökum tilfellum.
2. Reykingar eru með öllu óheimilar í húsum skólans og á skólalóð. Önnur tóbaksnotkun er með öllu óheimil í húsum skólans.
3. Af gefnu tilefni er öll meðferð elds alfarið óheimil á heimavistinni, þar með talin notkun kerta og reykelsis. Öllum íbúum heimavistar er skylt að taka þátt í brunaæfingu einu sinni á skólaári, undir leiðsögn slökkviliðsstjóra. Skólameistari sér um að framfylgja þessari reglu.
4. Skólameistari, og starfsmenn skólans í umboði hans eiga aðgang að herbergjum vistarbúa hvenær sem er til eftirlits.
5. Óheimilt er með öllu að neyta, varðveita eða vera undir áhrifum áfengra drykkja í húsum skólans, á skólalóð, svo og á ferðalögum, samkomum eða öðru á vegum skólans.
6. Óheimilt er með öllu að neyta, varðveita eða vera undir áhrifum ólöglegra vímuefna í húsum skólans, á skólalóð, svo og á ferðalögum, samkomum eða öðru sem fram fer á vegum skólans. Brot á þessari grein varðar tafarlausri brottvísun. Skólinn stendur fyrir reglubundnum og fyrirbyggjandi aðgerðum svo sem utanaðkomandi eftirliti af hálfu lögreglu a.m.k. einu sinni á önn.
7. Nemendur bera ábyrgð á herbergjum sínum og því sem fram fer þar eða finnast kann þar. Nemendur bera ábyrgð á að gestir þeirra fari að reglum skólans eða heimavistar. Brjóti gestir reglur skólans er heimilt að beita nemanda sem ábyrgð ber viðurlögum í samræmi við reglur skólans eða heimavistar
8. Vakni grunur um meðferð og eða neyslu ólöglegra vímuefna hjá nemanda, geta skólayfirvöld farið fram á að nemandinn undirgangist vímuefnapróf.
9. Hver vistarbúi skal annast ræstingu á herbergi sínu, sturtuklefa og salerni.
10. Nemendum er ekki heimilt að ganga um innan skólahúsnæðis á útiskóm.
11. Húsum heimavistar er læst kl. 24.00 sunnud. - fimmtud., og kl. 05.00 á föstudögum og laugardögum . Á próftíma er húsum heimavistar læst kl. 01,00 á föstudögum og laugardögum. Frá klukkan 23.30-07.30 dag hvern skal ríkja algjört næði á heimavistum, jafnt á göngum sem á herbergjum. Meðan próf standa yfir ber íbúum að sýna hver öðrum fyllstu tillitsemi. Á prófatíma er ekki veitt heimild til að hýsa gesti.
12. Nemendum er heimilt að hafa hljómflutningstæki, tölvu og sjónvarpstæki inni á herbergjum sínum, sé þess gætt að tækin valdi ekki truflun og að fullt tillit sé tekið til annarra íbúa. Engir munir nemenda eru tryggðir á vegum skólans. Nemandi skal sjálfur tryggja sína muni, telji hann ástæðu til.
13. Í hverju heimavistarhúsi er starfandi vistarráð, sem skipað er þremur vistarbúum. Vistarráði er falin stjórn heimavistar og vinnur samkvæmt erindisbréfi sem því er sett. Vistarfundi skal halda mánaðarlega eða oftar ef þurfa þykir. Umsjón með og ábyrgð á að reglum sé fylgt, hvílir jafnfamt á hverjum einstökum vistarbúa.
14. Húsvörður hefur eftirlit með að reglum sé fylgt á heimavistum og húsbóndi á þeim tíma sólarhrings sem starf fer ekki fram í skólanum.
15. Vistun gæludýra á heimavist er bönnuð.
Viðurlög við brotum á reglum heimavistarinnar og skólans
Verði nemandi uppvís að brotum á reglum heimavistar og skólans hlýtur hann fyrir það refsistig skv. neðangreindu kerfi. Hljóti nemandi meira en 30 stig þýðir það brottvísun úr skóla.
Viðurlög:
Tafarlaus brottvísun, meira en 30 stig:
Að neyta, varðveita eða vera undir áhrifum ólöglegra vímuefna í húsum skólans, á skólalóð, svo og á ferðalögum, samkomum eða öðru sem fram fer á vegum skólans. Þessir punktar fyrnast ekki á skólaárinu eða næstu önn.
Verði nemandi uppvís að verulegum skemmdum á munum eða húsnæði skólans getur það þýtt tafarlausa brottvísun.
Að neyta, varðveita eða vera undir áhrifum áfengis í húsum skólans, á skólalóð, svo og á ferðalögum, samkomum eða öðru sem fram fer á vegum skólans á prófatíma.
25 stig:
Neiti nemandi að undirgangast vímuefnapróf varðar það brottvísun af heimavist.
20 stig:
Að neyta, varðveita eða vera undir áhrifum áfengis í húsum skólans, á skólalóð, svo og á ferðalögum, samkomum eða öðru sem fram fer á vegum skólans. Þessi stig standa með nemandanum næstu 20 kennsluvikur og falla svo niður. Ef nemandi er ekki búinn að klára 20 kennsluvikur þegar önninni lýkur, þá færast stigin yfir á næstu önn.
15 stig:
Skemmdir á munum eða húsnæði skólans.
10 stig:
Reykingar í húsum skólans eða á skólalóð. Önnur tóbaksnotkun í húsum skólans.
5 stig:
Brot á öðrum reglum heimavistar.
Verði nemandi uppvís að öðrum brotum á reglum skólans, er það tekið fyrir í skólaráði sem ákveður fjölda refsistiga eftir eðli og umfangi brotsins.
Hverri önn er skipt í 4 vikna tímabil. Hljóti nemandi 9 eða færri refsistig á tímabilinu, hreinsast þau út á nýju tímabili. Hljóti nemandi 10 eða fleiri refsistig, tekur hann helming þeirra með sér yfir á nýtt tímabil.
