Íþróttaaðstaða

blak

Á Laugum er íþróttaaðstaða með því betri sem gerist í framhaldsskólum á Íslandi en skólinn kappkostar að gefa nemendum kost á því að stunda fjölbreytta líkamsrækt við góðar aðstæður. Íþróttahús skólans er glæsilegt og vel tækjum búið. Auk íþróttasalar eru þar tveir líkamsræktarsalir. Sundlaugin á Laugum er tengd við íþróttahús skólans en hún var tekin í notkun árið 2005. Glæsilegur íþróttavöllur er á Laugum sem nemendur hafa greiðan aðgang að en völlurinn var endurnýjaður árið 2006. Nemendur skólans hafa frían aðgang í íþróttahúsið, sundlaugina og ræktina sem er frábær kjarabót og því um að gera að nýta sér hina frábæru íþróttaaðstöðu eftir að kennslu lýkur.