Íþróttahúsið

Íþróttahúsið á Laugum

Í íþróttahúsinu á Laugum er íþróttasalur, tækjasalur og lyftingarherbergi.

Opnunartími íþróttahúss
Mánudagur 16.00-21.30
Þriðjudagur 16.00-21.30
Miðvikudagur 16.00-21.30
Fimmtudagur 16.00-21.30 
Föstudagur 16.00-19.00

Símanúmer: 464 6308

Í íþróttahúsinu gefst nemendum kostur á því að stunda fjölbreytta líkamsrækt við góðar aðstæður. Aðgangur að húsinu er án endurgjalds fyrir nemendur og starfsfólk skólans.

Eftir skóla gefst nemendum færi á að stunda fjölbreyttar íþróttagreinar, ýmist skipulagðar æfingar undir handleiðslu íþróttakennara eða í opnum tímum.


Húsreglur
• Öll meðferð og notkun áfengis, tóbaks og annarra vímuefna er alfarið óheimil í og við íþróttahús.

• Allar umbúðir úr gleri eru óheimilar í íþóttahúsinu (t.d. gosflöskur).

• Öll háreysti og hlaup á göngum og í sjónvarpsherbergi eru óheimil.

• Öll meðferð bolta er óheimil nema í aðalsal íþróttahússins.

• Öll truflun áhorfenda á æfingum er óheimil.

• Æfingahópar fá ekki að fara inn í sal fyrr en þjálfari kemur.

• Þeim sem ganga um íþróttahúsið er skylt að fara að fyrirmælum húsvarða og kennara.

• Brot á reglum þessum geta leitt til þess að viðkomandi einstaklingur fær ekki aðgang að íþróttahúsi í lengri eða skemmri tíma.

Ábyrgð
Þeir einstaklingar sem stunda æfingar í íþróttahúsinu gera það á eigin ábyrgð og skulu gæta þess að ganga þannig um, að ekki hljótist slys af, hvorki fyrir þá sjálfa eða aðra einstaklinga í kringum þá. Íþróttahúsið ber enga ábyrgð á slysum/meiðslum þeirra, sem stunda æfingar eða keppni í íþróttahúsinu. Þeir aðilar sem vinna þar, veita samt sem áður fúslega alla þá aðstoð sem þarf þegar slys ber að höndum, enda hafa þeir hlotið grunnmenntun í því að veita fyrstu hjálp.