Sundlaugin

Sundlaugin á Laugum

Sundlaugin á Laugum er glæsileg 25 metra útisundlaug með tveimur rúmgóðum heitum pottum og vaðlaug. Sundlaugin var vígð 8. júlí 2005 og er rekin af Þingeyjarsveit. Frítt er í sund fyrir nemendur og starfsfólk Framhaldsskólans á Laugum. Fátt er betra eftir góða íþróttaæfingu en að skella sér í pottinn og slappa af!

Opnunartími sundlaugar yfir vetrartíma:

Mánudaga 07:30 - 09:30 og 17:00 - 21:30
Þriðjudaga 07:30 - 09:30 og 17:00 - 21:30
Miðvikudaga 07:30 - 09:30 og 17:00 - 21:30
Fimmtudaga 07:30 - 09:30 og 17:00 - 21:30
Föstudaga 07:30 - 09:30
Laugardaga 15:00 - 18:00
Sunnudaga Lokað


Sími í íþróttahúsi og sundlaug er: 464 6308

Forstöðumaður er Snæbjörn Benediktsson
Sími: 862 3822