Íþróttavöllurinn

Laugavöllur er íþróttaleikvangur staðarins og í eigu sveitarfélagsins Þingeyjarsveitar. Völlurinn var endurnýjaður fyrir Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið var á Laugum sumarið 2006. Umhverfis grasvöllinn er hlaupabraut lögð gerviefnum. Brautin er upphituð innsta hringinn svo hægt er að ganga eða hlaupa á vellinum allan ársins hring. Nemendur skólans hafa greiðan aðgang að hlaupabrautinni allan veturinn og aðgang að grasvelli þegar hann er opinn og vallaraðstæður leyfa.
