Frábær námsaðstaða er á Laugum en með nýju námsfyrirkomulagi, sem samanstendur af fagtímum og vinnustofum, hefur verið leitast við að skapa notalegt vinnu- og námsumhverfi. Uppröðun borða í vinnustofum er til dæmis önnur en í hefðbundnum kennslustofum þar sem myndaðir eru básar og hópvinnuborð. Reynt er að hafa mismunandi vinnuaðstöðu þannig að nemendur geti að einhverju leyti valið sér aðstöðu sem þeim hentar best. Bókahillur eru notaðar til að afmarka vinnupláss, myndir prýða veggi, blóm setja sinn svip á umhverfið og á nokkrum stöðum hefur verið komið fyrir sófum þar sem nemendur geta látið fara vel um sig, t.d. þegar þeir eru að lesa eða ræða við kennara eða skólasystkini undir fjögur augu.
Útskriftarnemendur hafa svo sitt eigið "heimasvæði" en hefur hver nemandi hefur sitt eigið skrifborð og stól þar sem þeir hafa aðsetur. Til stendur að fjölga heimasvæðum og stefnt er að því að allir nemendur muni á endanum hafa sitt heimasvæði.