Heimasvæði
Á Bjarmalandi, sem er á annarri hæð Gamla skóla, hafa útskriftarnemendur sitt eigið heimasvæði. Hver nemandi hefur þá sitt eigið skrifborð og þar með fasta vinnuaðstöðu. Í vinnustofum vinna nemendur þá á sínu heimasvæði. Til stendur að fjölga heimasvæðum og stefnt er að því að allir nemendur muni á endanum hafa sitt heimasvæði.
Mikil ánægja er með þetta fyrirkomulag hjá þeim nemendum sem aðstöðuna nýta.
