Félagslífið

Félagslífið

Félagslífið er mikilvægur hluti af skólastarfinu ekki síst vegna staðsetningar og umhverfis skólans. Í litlum skóla eins og Framhaldsskólanum á Laugum verður félagslífið oft ólíkt því sem gerist í stærri skólum. Á Laugum koma flestir nemendur með einum eða öðrum hætti að félagslífinu. Það verður einnig fjölbreyttara þar sem nemendur búa flestir í skólanum.

Stefna skólans er að hlúa sem best að félagslífi nemenda með aðstoð og ráðgjöf kennara en félagslífið sem slíkt er að frumkvæði og undir forsjá nemenda. Þátttaka í félagslífi þjálfar og eflir samskiptahæfni nemenda og býr þá ekki síður en annað starf skólans undir að verða virkir og ábyrgir þegnar í samfélaginu.

Skólinn státar af afar góðri aðstöðu fyrir félagsstarf.

Félagsaðstöða nemenda hefur verið komið fyrir í gömlu innisundlauginni í Gamla skóla og hefur hún hlotið nafnið Laugin. Þar er skjávarpi og heimabíókerfi, sófar og dýnur og sitthvað fleira. Nemendur á þriðja ári sem stefna á utanlandsferð reka sjoppu í gamla kvennabúningsklefanum við hlið Laugarainnar.

Þróttó er meira en kvikmyndahús. Þar er hægt að halda tónleika eða fyrirlestra og þar halda nemendur stærri fundi. Þar er aðstaða fyrir nemendur til að æfa tónlist, leiklist eða hvers konar uppákomur sem þeir vilja ráðast í.

Í íþróttahúsinu er aðstaða fyrir fjölbreytta íþróttaiðkun ásamt líkamsræktaraðstöðu að ógleymdri sundlauginni.

Bryndís ElsaNemendafélagið stendur reglulega fyrir viðburðum í skólanum og þá má nefna nokkra fasta liði í skólastarfinu eins og Tónkvíslina, árshátíð og uppskeruhátíð.

Tónkvíslin er söngkeppni Nemendafélags Framhaldsskólans á Laugum og er undankeppni skólans fyrir Söngkeppni framhaldsskólanema. Nemendum úr grunnskólum á svæðinu er boðið að taka þátt í sérstakri grunnskólakeppni á Tónkvíslinni sem hlotið hefur góðar viðtökur. Heimasíður Tónkvíslarinnar má finna á nfl.is/tonkvisl

Mikið leiklistarstarf er hjá Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar í Rekjadal en nemendum Framhaldsskólans á Laugum hefur undanfarin ár verið gefinn kostur á að taka þátt í uppsetningum leikdeildarinnar. Veturinn 2010-2011 setti Leikdeild Eflingar upp söngleikinn Saga úr vesturbænum (West side story) og tóku fjölmargir nemendur skólans þátt í verkinu. Nánari upplýsingar um leikstarfsemi Leikdeildar Eflingar má finna á leikdeild.is

Meira má fræðast um starf Nemendafélagsins og félagslíf á Laugum á vefsíðunni www.nfl.is.