Brautskráningarhátíð 2012

Brautskráningarhátíð 2012Við brautskráum nýstúdentana okkar við hátíðlega athöfn í íþróttahúsi Framhaldsskólans á Laugum laugardaginn 19. maí 2012 kl. 14.00. Brautskráðir verða stúdentar af félagsfræði-, náttúrufræði- og íþróttabraut.

Verið öll hjartanlega velkomin að gleðjast með okkur og þiggið kaffiveitingar að athöfn lokinni.
Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum

 

Framhaldsskólinn á Laugum - Kynntu þér málið hér!

Áskorun á útskriftarnema

Kveðjur frá útskriftarnemum á töflu skólansStarfsfólk Framhaldsskólans á Laugum skoraði í gær á útskriftarnema í íþróttakeppni í íþróttahúsinu í dag kl. 16.30. Keppnisgreinar verða bogfimi, blindrabolti og blak. Það lið sem vinnur 2 greinar vinnur keppnina. Undir er skrifað "Mætið ef þið þorið - Starfsfólk FL". Útskriftarnemar hafa tekið áskoruninni og verður spennandi að sjá hvernig keppnin fer. Útskriftarnemar voru með dimiteringu í dag og tóku daginn snemma þegar þeir fóru í vagni aftan í dráttarvél á milli heimila kennara og vöktu þá með látum. Þeir höfðu svo tekið kaffistofu starfsmanna í gegn og snúið þar öllu við og merkt hvern einasta hlut með "post-it" miða, allt frá kaffipokum, stólum, loftljósum og rúðum yfir í blöð sem hengu á minnistöflu. Starfsfólkið fékk svo afhent nafnspjöld í morgun þar sem mátti sjá titla á borð við Barbie, Ken, Pamela Anderson, Jóakim aðalönd, Stiffler's mom og David Attenborough. Þá höfðu útskriftarnemar hengt blöð með myndum af sér úr Morkinskinnu upp á töflu þar sem þeir þökkuðu fyrir sig með góðum kveðjum, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Nokkrir hafa fengið að fljúga í tjörnina í dag, einn kennari og nokkrir nemendur. Þessi næstsíðasti dagur skólaársins hefur því verið venju fremur viðburðaríkur og honum hvergi nærri lokið þegar þetta er skrifað.

 

Morkinskinna komin í hús

Fjölnir Jónsson með MorkinskinnuMorkinskinna, ársrit Nemendafélags Framhaldsskólans á Laugum, kom í hús um hádegisbil í gær, nemendum og starfsfólki til mikillar ánægju. Á meðfylgjandi mynd er Fjölnir Jónsson með fyrstu Morkinskinnuna 2012. Í bókinni eru myndir af nemendum og starfsfólki auk þess sem nemendum bauðst að senda inn svör við nokkrum spurningum, svo sem hvað nemendur töldu vera eftirminnilegast frá vetrinum.

 
Fleiri greinar...


einkunnarord

Tilkynningar

Nýtt kynningarmyndband á YouTubeVið höfum gefið út nýtt kynningarmyndband. Myndbandið má finna á hér

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur
föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og
leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá
ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Ráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið
til að taka þátt í forinnrituninni.

Innritun annarra en 10. bekkinga verður 4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1995 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að
skipta um skóla hefst miðvikudaginn 4. apríl og lýkur fimmtudaginn 31. maí. Umsækjendur þurfa
að sækja veflykil að innritunarvef á menntagatt.is.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 8. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum
úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 8. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá
grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Vegna mikilla verðhækkana á aðföngum og launahækkanir skv. nýjum kjarasamningum sl. sumar hefur stjórn skólans ásamt skólanefnd ákveðið að hækka verðskrá mötuneytis og þvottahúss á vorönn 2012. Nánar

Skóladagatal Framhaldsskólans á Laugum, 2011 - 2012

Smelltu hér (pdf)

inna-logo moodlelogo