Fréttir

Þorbjörg Eva og Hafliði sigruðu Tónkvíslina

Sigurvegarar á Tónkvísl 2012, Þorbjörg Eva og Hafliði EmilTónkvíslin, söngkeppni nemendafélags Framhaldsskólans á Laugum, fór fram í íþróttahúsi skólans á sunnudagskvöldið. 25 keppendur tóku þátt í 19 atriðum, þar af 13 keppendur frá sjö grunnskólum: Borgarhólsskóla, Hafralækjarskóla, Litlulaugaskóla, Reykjahlíðarskóla, Stórutjarnaskóla, Vopnafjarðarskóla og Öxarfjarðarskóla. Þetta var í sjöunda skipti sem Tónkvíslin er haldin með þessu sniði, að nemendum úr grunnskólum í nágreninu er boðið að taka þátt.

Í framhaldsskólakeppninni sigruðu Þorbjörg Eva Magnúsdóttir og Hafliði Emil Barðason með glæsibrag, en þau tóku lagið Burn one down í útgáfu Walk off the earth. Þau verða því fulltrúar Framhaldsskólans á Laugum í Söngkeppni framhaldsskólanna sem haldin verður í Reykjavík í ár. Í öðru sæti var Bryndís Elsa Guðjónsdóttir sem söng lagið Don't stay með Laura Izibor og í þriðja sæti var Daníel Smári Magnússon sem söng Wanted dead or alive með Bon Jovi.

Í grunnskólakeppninni sigruðu bræðurnir Ágúst Þór og Rúnar Þór Brynjarssynir frá Húsavík sem tóku lagið Rangur maður, einnig með miklum glæsibrag. Í öðru sæti voru þær Gabríela Sól Magnúsdóttir og Sigurrós Halldórsdóttir frá Vopnafjarðarskóla sem sungu lagið Someone like you með söngkonunni Adele. Í þriðja sæti var svo Marit Alavere frá Stjórutjarnaskóla sem söng lagið Honey honey með Abba í útgáfu Amanda Seyfried.

Um 350 áhorfendur mættu á keppnina sem þótti vel heppnuð í alla staði. Nemendur skólans ásamt fleirum góðum hjálparhellum lögðu á sig mikla vinnu við undirbúning á Tónkvíslinni, sem var þeim öllum sannarlega til sóma. Fjölmörg fyrirtæki styrktu keppnina og eiga þau miklar þakkir skildar fyrir, en það er grundvöllur þess að hægt sé að halda Tónkvíslina og frábært hversu mikla velvild verkefnið hefur hlotið.

Hægt er að horfa á siguratriðið með Obbu og Hafliða á youtube hér

 

Tónkvíslin 2012

Tónkvíslin 2012Tónkvíslin er forkeppni Framhaldsskólans á Laugum fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna. Frá upphafi hafa yfir 130 ungir og efnilegir tónlistarmenn stigið á svið Tónkvíslarinnar, um 30-40 á ári hverju. Sumir hafa tekið þátt oftar en einu sinni og aðrir oftar en tvisvar og sungið fyrir áhorfendur sem hafa verið á bilinu 250-400 ár hvert. Tónkvíslin hefur því á undanförnum árum skipað sér ákveðinn sess sem tónlistarhátíð í Þingeyjarsýslu. 

Nánar...

 

Skrifað undir stofnanasamning

Aðalsteinn Árni formaður Framsýnar og Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari Framhaldsskólans á Laugum gengu frá nýjum stofnanasamningi í gær fyrir starfsmenn í bókasafni skólans.Í gær skrifuðu forsvarsmenn Framsýnar og Framhaldsskólans á Laugum undir nýjan stofnanasamning fyrir starfsmenn er starfa í bókasafni skólans. Samkvæmt gildandi kjarasamningi Fjármálaráðherra fh. ríkisjóðs og Starfsgreinasambands Íslands sem Framsýn er aðili að, ber aðilum að gera stofnanasamninga fyrir þau störf sem falla undir viðkomandi stofnanir.  Framsýn er með nokkra slíka samninga í dag fyrir félagsmenn sem starfa hjá ríkinu.

Á myndinni eru Aðalsteinn Árni formaður Framsýnar og Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari Framhaldsskólans á Laugum sem gengu frá nýjum stofnanasamningi í gær fyrir starfsmenn í bókasafni skólans.

 

Gettu betur í kvöld

gettubeturGettu betur lið Framhaldsskólans á Laugum keppir í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, 19. janúar. Keppnin er klukkan 19:30 en skólinn dróst á móti liði Menntaskólans á Akureyri. Lið Framhaldsskólans á Laugum skipta þau Ísak Már Aðalsteinsson, Sandra Lind Bjarnadóttir og Teitur Erlingsson.

Keppnin átti að fara fram þriðjudagskvöldið 10. janúar en vegna ófærðar um allt land féllu allar viðureignir kvöldsins niður og færðar til fimmtudagsins 19. janúar.

Við hvetjum alla til að mæta í Háskólann á Akureyri og horfa á þau keppa og hvetja til dáðar. Keppninni er útvarpað á Rás 2 fyrir þá sem ekki geta mætt.

Áfram Laugar!

 

Skóli hafinn á nýju ári

back-to-schoolÍ gær opnuðu heimavistir eftir jólafrí og í dag hófst kennsla á vorönn 2012 í Framhaldsskólanum á Laugum. Nokkrir nýir nemendur eru að hefja nám við skólann og bjóðum við þá sérstaklega velkomna. Framundan er spennandi önn og er það okkar, starfsfólks og nemenda, að gera hana skemmtilega, hressandi og árangursríka.

 

Jólakaffi í Dalakofanum

Jólakaffi í DalakofanumNemendur á 3. ári í Framhaldsskólanum á Laugum, sem nú safna fyrir útskriftarferð sinni, ætla að hafa jólakaffi í Dalakofanum annað kvöld, 13. desember, til styrktar ferðasjóði. Boðið verður upp á kökur og kakó og til skemmtunar verða sungin og spiluð jólalög. Húsið opnar kl 20. Vonumst til að sjá sem flesta.

Fullorðnir: 1500 kr. 6-16 ára: 1000 kr. 5 ára og yngri: frítt

 

Fjölmenn hátíðarsamkoma í Þróttó

Nemendur í uppeldisfræði 203 flutti leikþáttFjölmennt var á samverustund sem allir skólarnir á Laugum boðuðu til í Þróttó í morgun í tilefni af fullveldisdeginum 1. desember. Fjölmennið var slíkt að ekki fengu allir sæti og margir þurftu að standa. Hátíðardagskrá var í höndum nemenda allra skólanna. Kynnar voru þau Eydís Helga Pétursdóttir og Teitur Erlingsson, nemendur framhaldsskólans. Fyrst stigu á svið leikskólabörn úr leikskólanum Krílabæ sem sungu lagið Leit ég litla mús. Eyþór Alexander Hallsson nemandi tónlistarskólans spilaði því næst á píanó. Þrastarungarnir, kór yngri nemenda Litlulaugaskóla, söng lag og á eftir þeim Laugaþrestir, kór eldri nemenda Litlulaugaskóla, við undirleik Péturs Ingólfssonar. Nemendur Framhaldsskólans á Laugum í Uppeldisfræði 203 hjá Júlíu B. Sigurðardóttur fluttu svo leikþátt.

Gleði skein úr augum hátíðargesta enda ánægjulegt hversu gott samstarf er á milli skólanna fjögurra eins og þessi samverustund gefur til kynna.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru á samkomunni.

Nánar...

 

Hátíðarsamkoma í dag

Hátíðarsamkoma í dagSkólarnir á Laugum bjóða til samverustundar í Þróttó í dag, 1. desember, í tilefni af fullveldisdeginum. Hátíðardagskrá er í höndum nemenda allra skólanna og verður frá kl. 11-12 í Þróttó.

Njótum upphafs aðventu með unga fólkinu okkar.

Framhaldsskólinn á Laugum
Litlulaugaskóli
Tónlistarskólinn á Laugum
Leikskólinn Krílabær

 

Vel heppnuð árshátíð að Ýdölum

Dansað með Helgu BröguÁrshátíð Framhaldsskólans á Laugum var haldin í félagsheimilinu að Ýdölum síðasta föstudag, en til stóð að halda hana á Breiðumýri en vegna mikils fjölda hátíðargesta þótti ráðlagt að færa hátíðina. Árshátíðin hófst með karókí keppni milli borða til að skera úr um hvaða borð fengi fyrst að fá sér að borða. Fjölnir Jónsson, forseti nemendafélagsins, tilkynnti svo að veislustjóri kvöldsins myndi gera úrslitin kunngjör, sem var, öllum að óvörum, Helga Braga Jónsdóttir. Kom hún dansandi inn á sviðið í fullu fjöri við mikið lófaklapp og köll frá árshátíðargestum. Helga Braga kunni svo sannarlega að skemmta lýðnum og var henni afar vel tekið.

Nánar...

 

Námsbraut í ferðamálafræðum

Framhaldsskólinn á LaugumFramhaldsskólinn á Laugum býður upp á nám í ferðafræði FER 103 á vorönn 2012. Þetta er fyrsti áfangi sem kenndur er á námsbraut í ferðamálafræðum við Framhaldsskólann á Laugum og er grunnáfangi og undirbúningur fyrir aðra áfanga námsbrautarinnar. Námstundir eru 6 á viku, þar af 4 kennslustundir og 2 stundir í vinnustofu, sem skiptast á tvo vikudaga.

Kennsla hefst 5. janúar og lýkur 11. maí 2012. 
Inntökuskilyrði eru að hafa lokið grunnskólaprófi.
Innritað er í áfangann til 15. desember 2011 í Framhaldsskólanum á Laugum eða rafrænt hér á laugar.is - innritun FER 103

Leiðbeinandi verður Margrét Hólm Valsdóttir, viðskipta- og ferðamálafræðingur

Nánar...

 

Árshátíð skólans á föstudaginn

Veisluborðið mun án vafa svigna undan kræsingum á föstudagskvöldiðÁrshátíð Framhaldsskólans á Laugum fer fram í Ýdölum næstkomandi föstudag. Húsið opnar kl. 18.30 og maturinn hefst kl. 19.30. Að sögn Kristjáns kokks er undirbúningur hjá honum og hans aðstoðarfólki í fullum gangi enda verða miklar kræsingar á borð borðnar líkt og undanfarin ár. Sömuleiðis eru nemendur hverrar vistar að undirbúa vistaratriði sem sýnd verð og verður spennandi að sjá hver vinnur vistarkeppnina að þessu sinni.

Nemendur eru minntir á að skráning á árshátíðina fer fram á skrifstofu ritara og lýkur skráningu í dag kl. 16.

 

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tunguDagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í dag, 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Er þetta í sextánda sinn sem deginum er fagnað. Í tilefni dagsins beinist athyglin eins og fyrr að stöðu tungunnar, gildi hennar og menningu. Glærur með nokkrum setningarfræðilegum vangaveltum eru á tilkynningaskjám skólans í dag, en þær má einnig sjá með því að smella á nánar.

Nánar...

 

Nemendur á öllum skólastigum á Laugum

Baldur tekur við rós frá Eydísi HelguÁ föstudaginn síðastliðinn var Urðarbrunnur, þekkingar og þróunarsetur, formlega opnað á Laugum. Urðarbrunnur hefur tekið miðhæðina í Álfasteini á leigu hjá skólanum og hefur þar aðsetur. Dagskráin hófst klukkan 17:00 í Þróttó með léttu spjalli Ágústs Ólafssonar fréttamanns á RÚV, sem bar yfirskriftna "Laugar - með augum aðkomumannsins". Aðstaða Urðarbrunns í Álfasteini var síðan formlega opnuð. Gestum var boðið var upp á léttar veitingar meðan nýja aðstaða Urðarbrunns var kynnt fyrir þeim.

Nánar...

 

Þjóðháttasöfnun um framhaldsskólasiði

natmusUm þessar mundir er unnið að þjóðháttasöfnun um hefðir og siði í framhaldsskólum á vegum Þjóðminjasafn Íslands. Skólinn hefur, fyrir sitt leyti, samþykkt að söfnun þessi megi fara fram innan sinna vébanda. Tilgangur söfnunarinnar er að kynnast þeirri menningu sem ríkir meðal nemenda, og er hún jafnframt hluti af meistaraverkefni í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Aðallega er spurt um eigin reynslu nemenda og verða öll svör ópersónugreinanleg.

Skólinn hvetur nemendur til að taka þátt í söfnuninni og stuðla þannig að því að varðveita mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum. Frásagnir nemenda verða með tíð og tíma ómetanlegar heimildir um lífið í skólanum.

Nánar...

 

Dagur gegn einelti

Vináttuhringur á LaugatorgiÍ tilefni af Degi gegn einelti sem haldinn er um land allt í dag, 8. nóvember, söfnuðust nemendur og starfsfólk Framhaldsskólans á Laugum saman á Laugatorgi, héldu saman höndum og mynduðu hring. Björn Húnbogi Birnuson, nemandi við skólann, las ljóðið um vináttu eftir Hjálmar Freysteinsson, lækni og hagyrðing á Akureyri, en textinn er við sænksa lagið Vem kan segla.

Sönn vinátta

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir

Húnbogi las ljóð um vináttu

Nánar...

 

Laugamót í knattspyrnu

Laugamót í knattspyrnu fer fram um helginaHið árlega Laugamót í knattspyrnu fer fram núna um helgina í íþróttahúsi Framhaldsskólans á Laugum. Það er íþróttabraut skólans sem heldur mótið og sér um allan undirbúning og skipulag. Í dag er keppt í kvennaflokki og á morgun í karlaflokki.

Fimm lið eru skráð til leiks í kvennaflokknum og eru liðin bæði héðan frá Laugum sem og frá Vopnafirði og Húsavík. Í karlaflokknum eru átta lið skráð til leiks en þar koma liðin meðal annars frá Laugum, Mývatnssveit, Kelduhverfi, Vopnafirði og eitt lið kemur alla leið frá Sandgerði.

Búist er við all nokkru fjölmenni á mótið, bæði keppendum og áhorfendum.

 

Þór - hetjur Valhallar í bíó í kvöld

thorÖrlög guða og manna eru í hættu þegar Hel hin illa Undirheimadrottning vill sölsa undir sig Miðgarð og Ásgarð. Hinn ungi Þór vopnaður Mjölni slæst í lið með æsunum og eru örlög alls heimsins í þeirra höndum. Hetjur Valhallar er fyrsta íslenska teiknimyndin í fullri lengd og um leið fyrsta íslenska teiknimyndin í þrívídd.

Myndin verður sýnd í Laugabíói í kvöld kl. 20:00.
Miðaverð 1.000 krónur

 

Snævi þakin jörð á Laugum

Snævi þakin jörð 5. októberÞað var kuldalegt um að litast þegar fólk vaknaði á Laugum í morgun þar jörðin er nú snævi þakin, eins og sést á meðfylgjandi myndum. Það verður spennandi að sjá hvort einhverjir snjókarlar eiga eftir að líta dagsins ljós í dag, en jafnframt spennandi hversu lengi snjórinn ætlar að staldra við í þetta skiptið.

Nánar...

 

Tilkynningasjónvarp

TilkynningasjónvarpRafrænt tilkynninga-sjónvarp hefur verið tekið í notkun í Framhaldsskólanum á Laugum. Fyrst var settur upp 43" flatskjár í anddyri Gamla skóla, því næst öðrum bætt við í anddyri Dvergasteins og nú hefur tilkynningasjónvarpinu verið bætt inn á sjónvarpsstöðina Ísafold en þar munu tilkynningarnar rúlla meðan ekki er önnur dagskrá í gangi. Vonast er til að þetta muni geta aukið nokkuð skilvirkni og vonandi að tilkynningar fari ekki fram hjá fólki. Auk þess sparast við þetta all nokkur pappírsnotkun og ekkert nema gott um það að segja.

Nánar...

 

Heilsueflandi framhaldsskóli

HoFFÁ þriðjudaginn síðastliðinn tók Framhaldsskólinn á Laugum formlega við fána heilsueflandi framhaldsskóla. Dr. Kristján Þór Magnússon, verkefnisstjóri frá Landlæknisembættinu kom og afhenti fánann en það var Fjölnir Jónsson, forseti nemendafélagsins, sem dróg fánann að húni. Kristján afhenti nemendum og starfsmönnum svo drykkjarbrúsa sem eru merktir Heilsueflandi framhaldsskóli.

Verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli snýr að heildrænni stefnu í forvarna- og heilsueflingarmálum sem gerir framhaldsskólum kleift að marka sér skýra stefnu, skerpa á aðgerðaráætlunum og forvörnum og jafnframt mynda á hagnýtan hátt skýran ramma utan um þennan almenna málaflokk.

Nánar...

 
Tilkynningar

Framhaldsskólinn á Laugum býður upp á nám í ferðafræði FER 103 á vorönn 2012. Innritað er í áfangann til 15. desember. Nánar

Vegna mikilla verðhækkana á aðföngum og launahækkanir skv. nýjum kjarasamningum sl. sumar hefur stjórn skólans ásamt skólanefnd ákveðið að hækka verðskrá mötuneytis og þvottahúss á vorönn 2012. Nánar

Skóladagatal Framhaldsskólans á Laugum, 2011 - 2012

Smelltu hér (pdf)

inna-logo moodlelogo