Heilsueflandi framhaldsskóli

HoFFÁ þriðjudaginn síðastliðinn tók Framhaldsskólinn á Laugum formlega við fána heilsueflandi framhaldsskóla. Dr. Kristján Þór Magnússon, verkefnisstjóri frá Landlæknisembættinu kom og afhenti fánann en það var Fjölnir Jónsson, forseti nemendafélagsins, sem dróg fánann að húni. Kristján afhenti nemendum og starfsmönnum svo drykkjarbrúsa sem eru merktir Heilsueflandi framhaldsskóli.

Verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli snýr að heildrænni stefnu í forvarna- og heilsueflingarmálum sem gerir framhaldsskólum kleift að marka sér skýra stefnu, skerpa á aðgerðaráætlunum og forvörnum og jafnframt mynda á hagnýtan hátt skýran ramma utan um þennan almenna málaflokk.

Verkefnið hefur verið þróað í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið, undir formerkjum HoFF sem stendur fyrir Heilsuefling og forvarnir í framhaldsskólum. HoFF er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, Lýðheilsustöðvar, Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) og Hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskólanema (HÍF).

Markmiðið með verkefninu er að stuðla markvisst að velferð og góðri heilsu framhaldsskólanemenda. Enda hafa rannsóknir sýnt að heilsueflandi umhverfi bætir líðan nemenda og stuðlar að betri násmárangri.

 
Tilkynningar

Nýtt kynningarmyndband á YouTubeVið höfum gefið út nýtt kynningarmyndband. Myndbandið má finna á hér

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur
föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og
leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá
ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Ráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið
til að taka þátt í forinnrituninni.

Innritun annarra en 10. bekkinga verður 4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1995 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að
skipta um skóla hefst miðvikudaginn 4. apríl og lýkur fimmtudaginn 31. maí. Umsækjendur þurfa
að sækja veflykil að innritunarvef á menntagatt.is.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 8. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum
úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 8. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá
grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Vegna mikilla verðhækkana á aðföngum og launahækkanir skv. nýjum kjarasamningum sl. sumar hefur stjórn skólans ásamt skólanefnd ákveðið að hækka verðskrá mötuneytis og þvottahúss á vorönn 2012. Nánar

Skóladagatal Framhaldsskólans á Laugum, 2011 - 2012

Smelltu hér (pdf)

inna-logo moodlelogo