Snævi þakin jörð á Laugum
Það var kuldalegt um að litast þegar fólk vaknaði á Laugum í morgun þar jörðin er nú snævi þakin, eins og sést á meðfylgjandi myndum. Það verður spennandi að sjá hvort einhverjir snjókarlar eiga eftir að líta dagsins ljós í dag, en jafnframt spennandi hversu lengi snjórinn ætlar að staldra við í þetta skiptið.

