Dagur gegn einelti

Vináttuhringur á Laugatorgi

Í tilefni af Degi gegn einelti sem haldinn er um land allt í dag, 8. nóvember, söfnuðust nemendur og starfsfólk Framhaldsskólans á Laugum saman á Laugatorgi, héldu saman höndum og mynduðu hring. Björn Húnbogi Birnuson, nemandi við skólann, las ljóðið um vináttu eftir Hjálmar Freysteinsson, lækni og hagyrðing á Akureyri, en textinn er við sænksa lagið Vem kan segla.

Gulli og perlum að safna sér
sumir endalaust reyna.
Vita ekki að vináttan er
verðmætust eðalsteina.

Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.

Á vefnum gegneinelti.is kemur fram að verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið í samvinnu við Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og fjölda félagastaka að standa að sérstökum degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis, og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum sem kom út í júní 2010.

Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og Jón Gnarr borgarstjóri fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum. Við undirritunina, sem verður í Höfða, verða einnig afhent gul armbönd sem gerð hafa verið í tilefni dagsins og bera yfirskriftina: Jákvæð samskipti. Þeim verður í kjölfarið dreift til almennings eftir því sem að upplag endist.

Nemendur og starfsfólk skólans eru eindregin hvött til að kynna sér og skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti

Húnbogi las ljóð um vináttu

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir

Sönn vinátta

 
Tilkynningar

Nýtt kynningarmyndband á YouTubeVið höfum gefið út nýtt kynningarmyndband. Myndbandið má finna á hér

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur
föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og
leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá
ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Ráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið
til að taka þátt í forinnrituninni.

Innritun annarra en 10. bekkinga verður 4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1995 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að
skipta um skóla hefst miðvikudaginn 4. apríl og lýkur fimmtudaginn 31. maí. Umsækjendur þurfa
að sækja veflykil að innritunarvef á menntagatt.is.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 8. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum
úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 8. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá
grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Vegna mikilla verðhækkana á aðföngum og launahækkanir skv. nýjum kjarasamningum sl. sumar hefur stjórn skólans ásamt skólanefnd ákveðið að hækka verðskrá mötuneytis og þvottahúss á vorönn 2012. Nánar

Skóladagatal Framhaldsskólans á Laugum, 2011 - 2012

Smelltu hér (pdf)

inna-logo moodlelogo