Nemendur á öllum skólastigum á Laugum
Á föstudaginn síðastliðinn var Urðarbrunnur, þekkingar og þróunarsetur, formlega opnað á Laugum. Urðarbrunnur hefur tekið miðhæðina í Álfasteini á leigu hjá skólanum og hefur þar aðsetur. Dagskráin hófst klukkan 17:00 í Þróttó með léttu spjalli Ágústs Ólafssonar fréttamanns á RÚV, sem bar yfirskriftna "Laugar - með augum aðkomumannsins". Aðstaða Urðarbrunns í Álfasteini var síðan formlega opnuð. Gestum var boðið var upp á léttar veitingar meðan nýja aðstaða Urðarbrunns var kynnt fyrir þeim.
Urðarbrunnur er rekstarfélag í sameiginlegri eigu þriggja félaga, Fornleifaskóla barnanna, Hins Þingeyska fornleifafélags og Þingeysks sagnagarðs. Þekkingarnet Þingeyinga hefur aðstöðu í húsnæðinu fyrir nemendur sem stunda háskólanám í fjarnámi auk aðstöðu fyrir smærri námskeið og fundi.
Með tilkomu aðstöðunnar stunda nú nemendur á öllum skólastigum nám á Laugum, allt frá leikskóla til háskóla. Tilkoma aðstöðunnar rennir því styrkum stoðum undir það menntasamfélag sem Laugar sannarlega er.
