Þjóðháttasöfnun um framhaldsskólasiði

natmusUm þessar mundir er unnið að þjóðháttasöfnun um hefðir og siði í framhaldsskólum á vegum Þjóðminjasafn Íslands. Skólinn hefur, fyrir sitt leyti, samþykkt að söfnun þessi megi fara fram innan sinna vébanda. Tilgangur söfnunarinnar er að kynnast þeirri menningu sem ríkir meðal nemenda, og er hún jafnframt hluti af meistaraverkefni í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Aðallega er spurt um eigin reynslu nemenda og verða öll svör ópersónugreinanleg.

Þetta er alfarið rafræn upplýsingasöfnun þar sem svarað er með tölvupósti, en eingöngu er leitað til 18 ára nemenda og eldri. Allar nánari upplýsingar um söfnunina eru veittar í síma 530 2273 og ennfremur er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Skólinn hvetur nemendur til að taka þátt í söfnuninni og stuðla þannig að því að varðveita mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum. Frásagnir nemenda verða með tíð og tíma ómetanlegar heimildir um lífið í skólanum.

Þjóðminjasafnið hefur safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám í meira en hálfa öld. Svörin eru varðveitt í skjalasafni stofnunarinnar og hafa flest þeirra verið slegin inn í rafrænan gagnagrunn.

Smellið á tengil hér fyrir neðan til að ná í spurningaskrána:
Spurningaskrá nr. 114: Framhaldsskólasiðir

Athugið að nauðsynlegt er að vista spurningaskrána í viðkomandi tölvu áður en byrjað er að svara.
Vinsamlegast sendið svörin á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Tilkynningar

Nýtt kynningarmyndband á YouTubeVið höfum gefið út nýtt kynningarmyndband. Myndbandið má finna á hér

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur
föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og
leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá
ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Ráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið
til að taka þátt í forinnrituninni.

Innritun annarra en 10. bekkinga verður 4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1995 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að
skipta um skóla hefst miðvikudaginn 4. apríl og lýkur fimmtudaginn 31. maí. Umsækjendur þurfa
að sækja veflykil að innritunarvef á menntagatt.is.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 8. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum
úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 8. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá
grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Vegna mikilla verðhækkana á aðföngum og launahækkanir skv. nýjum kjarasamningum sl. sumar hefur stjórn skólans ásamt skólanefnd ákveðið að hækka verðskrá mötuneytis og þvottahúss á vorönn 2012. Nánar

Skóladagatal Framhaldsskólans á Laugum, 2011 - 2012

Smelltu hér (pdf)

inna-logo moodlelogo