Árshátíð skólans á föstudaginn
Árshátíð Framhaldsskólans á Laugum fer fram í Ýdölum næstkomandi föstudag. Húsið opnar kl. 18.30 og maturinn hefst kl. 19.30. Að sögn Kristjáns kokks er undirbúningur hjá honum og hans aðstoðarfólki í fullum gangi enda verða miklar kræsingar á borð borðnar líkt og undanfarin ár. Sömuleiðis eru nemendur hverrar vistar að undirbúa vistaratriði sem sýnd verð og verður spennandi að sjá hver vinnur vistarkeppnina að þessu sinni.
Nemendur eru minntir á að skráning á árshátíðina fer fram á skrifstofu ritara og lýkur skráningu í dag kl. 16.
