Námsbraut í ferðamálafræðum

Framhaldsskólinn á LaugumFramhaldsskólinn á Laugum býður upp á nám í ferðafræði FER 103 á vorönn 2012. Þetta er fyrsti áfangi sem kenndur er á námsbraut í ferðamálafræðum við Framhaldsskólann á Laugum og er grunnáfangi og undirbúningur fyrir aðra áfanga námsbrautarinnar. Námstundir eru 6 á viku, þar af 4 kennslustundir og 2 stundir í vinnustofu, sem skiptast á tvo vikudaga.

Kennsla hefst 5. janúar og lýkur 11. maí 2012. 
Inntökuskilyrði eru að hafa lokið grunnskólaprófi.
Innritað er í áfangann til 15. desember 2011 í Framhaldsskólanum á Laugum eða rafrænt hér á laugar.is - innritun FER 103

Leiðbeinandi verður Margrét Hólm Valsdóttir, viðskipta- og ferðamálafræðingur

Margrét Hólm er skrifstofustjóri hjá Reynihlíð hf. í Mývatnssveit. Reynihlíð hf. er rótgróið ferðaþjónustufyrirtæki sem á og rekur Hótel Reynihlíð og Gamlabæinn kaffihús og bar í Reykjahlíð við Mývatn. Reynihlíð hf. hefur beitt sér fyrir stofnun fyrirtækja í greininni í nærumhverfi sínu svo sem Mýflugs, Baðfélags Mývatnssveitar og Mývatnsstofu. Fyrirtækið kemur að stofnun ferðamálabrautarinnar með myndarlegum hætti og kostar stöðu Margrétar þar til annað verður ákveðið.

FER 103 áfangalýsing:
Nemendur þekki helstu þætti sem snúa að ferðaþjónustu sem atvinnugrein. Nemendur þekki hugtök sem notuð eru í ferðaþjónustu, þróun og sögu hennar og hvaða þýðingu ferðaþjónustan hefur fyrir þjóðarbúskapinn. Nemendur þekki opinberar stofnanir ferðaþjónustunnar og hlutverk þeirra. Nemendur hafi skilning á starfsemi mismunandi fyrirtækja í ferðaþjónustu s.s. gisti- og veitingastaði, afþreyingarfyrirtæki, samgöngufyrirtæki og ferðaskrifstofur. Nemendur þekki jákvæð og neikvæð áhrif ferðaþjónustu á samfélagið, efnahagslífið, menningu og umhverfi og geri sér grein fyrir hvaða störf skapast í ferðaþjónustu og einkenni þeirra starfa. Áfanginn er grunnáfangi og er undirbúningur fyrir alla aðra áfanga í ferðamálanáminu.

Gert er ráð fyrir að aðiljar úr ferðaþjónustu verði með gestafyrirlestra tvisvar til þrisvar á önninni.

Námsmat sem er símat, byggist á verkefnaskilum, prófum og virkni nemenda í tímum.

Nánari upplýsingar veitir leiðbeinandi, Margrét Hólm, í síma 8645890, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  eða skólameistari í síma 4643112, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Skólameistari

 
Tilkynningar

Nýtt kynningarmyndband á YouTubeVið höfum gefið út nýtt kynningarmyndband. Myndbandið má finna á hér

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur
föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og
leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá
ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Ráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið
til að taka þátt í forinnrituninni.

Innritun annarra en 10. bekkinga verður 4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1995 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að
skipta um skóla hefst miðvikudaginn 4. apríl og lýkur fimmtudaginn 31. maí. Umsækjendur þurfa
að sækja veflykil að innritunarvef á menntagatt.is.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 8. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum
úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 8. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá
grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Vegna mikilla verðhækkana á aðföngum og launahækkanir skv. nýjum kjarasamningum sl. sumar hefur stjórn skólans ásamt skólanefnd ákveðið að hækka verðskrá mötuneytis og þvottahúss á vorönn 2012. Nánar

Skóladagatal Framhaldsskólans á Laugum, 2011 - 2012

Smelltu hér (pdf)

inna-logo moodlelogo