Vel heppnuð árshátíð að Ýdölum

Dansað með Helgu BröguÁrshátíð Framhaldsskólans á Laugum var haldin í félagsheimilinu að Ýdölum síðasta föstudag, en til stóð að halda hana á Breiðumýri en vegna mikils fjölda hátíðargesta þótti ráðlagt að færa hátíðina. Árshátíðin hófst með karókí keppni milli borða til að skera úr um hvaða borð fengi fyrst að fá sér að borða. Fjölnir Jónsson, forseti nemendafélagsins, tilkynnti svo að veislustjóri kvöldsins myndi gera úrslitin kunngjör, sem var, öllum að óvörum, Helga Braga Jónsdóttir. Kom hún dansandi inn á sviðið í fullu fjöri við mikið lófaklapp og köll frá árshátíðargestum. Helga Braga kunni svo sannarlega að skemmta lýðnum og var henni afar vel tekið.

Kristján kokkur og hans föruneyti hafði borið þvílíkar kræsingar á borð og rann maturinn ljúflega ofan í veislugesti. Stjórn nemendafélagsins tilkynnti úrslit úr kosningum sem haldnar voru fyrr í vikunni þar sem meðal annars var kosið um herra og frú fyrir hverja vist, ásamt fleiri skemmtilegum titlum. Vistaratriðin voru öll nema eitt í formi myndbands og meira að segja starfsfólkið var með myndband, ásamt því að syngja á sviði. Dómnefnd tilkynnti svo úrslit í vistarkeppninni og var það neðrihæð Tröllasteins sem vann að þessu sinni með skemmtilegu myndbandi. Skólahljómsveitin The Babes hélt svo fjörinu uppi eftir að borðhaldi lauk. Til að hita upp fyrir ballið dró Helga Braga nokkra gesti upp á svið og fékk þau til að dansa hressilega með sér.

Skemmtileg árshátíð skemmtilegra nemenda og skemmtilegra starfsmanna í skemmtilegum skóla!

 
Tilkynningar

Nýtt kynningarmyndband á YouTubeVið höfum gefið út nýtt kynningarmyndband. Myndbandið má finna á hér

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur
föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og
leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá
ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Ráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið
til að taka þátt í forinnrituninni.

Innritun annarra en 10. bekkinga verður 4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1995 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að
skipta um skóla hefst miðvikudaginn 4. apríl og lýkur fimmtudaginn 31. maí. Umsækjendur þurfa
að sækja veflykil að innritunarvef á menntagatt.is.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 8. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum
úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 8. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá
grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Vegna mikilla verðhækkana á aðföngum og launahækkanir skv. nýjum kjarasamningum sl. sumar hefur stjórn skólans ásamt skólanefnd ákveðið að hækka verðskrá mötuneytis og þvottahúss á vorönn 2012. Nánar

Skóladagatal Framhaldsskólans á Laugum, 2011 - 2012

Smelltu hér (pdf)

inna-logo moodlelogo