Tónkvíslin 2012

Tónkvíslin 2012Tónkvíslin er forkeppni Framhaldsskólans á Laugum fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna. Frá upphafi hafa yfir 130 ungir og efnilegir tónlistarmenn stigið á svið Tónkvíslarinnar, um 30-40 á ári hverju. Sumir hafa tekið þátt oftar en einu sinni og aðrir oftar en tvisvar og sungið fyrir áhorfendur sem hafa verið á bilinu 250-400 ár hvert. Tónkvíslin hefur því á undanförnum árum skipað sér ákveðinn sess sem tónlistarhátíð í Þingeyjarsýslu. 

Keppnin í ár fer fram í íþróttahúsinu á Laugum sunnudaginn 19. febrúar næstkomandi kl. 18:30 og munu yfir 20 atriði keppa, annars vegar frá Framhaldsskólanum á Laugum og hinsvegar frá 7 grunnskólum; Borgarhólsskóla, Hafralækjarskóla, Litlulaugaskóla, Reykjahlíðarskóla, Stórutjarnaskóla, Vopnafjarðarskóla, og Öxarfjarðarskóla. Verðlaun verða veitt í tveimur flokkum og mun sigurvegari úr hópi Framhaldsskólans á Laugum vera fulltrúi skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna í ár.

Miðaverð: 
Fullorðnir:1.500kr.
Grunnskólanemendur og NFL meðlimir: 1.000 kr.
Frítt fyrir börn á leikskólaaldri.

 
Tilkynningar

Nýtt kynningarmyndband á YouTubeVið höfum gefið út nýtt kynningarmyndband. Myndbandið má finna á hér

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur
föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og
leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá
ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Ráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið
til að taka þátt í forinnrituninni.

Innritun annarra en 10. bekkinga verður 4. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1995 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að
skipta um skóla hefst miðvikudaginn 4. apríl og lýkur fimmtudaginn 31. maí. Umsækjendur þurfa
að sækja veflykil að innritunarvef á menntagatt.is.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 8. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum
úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 8. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá
grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Vegna mikilla verðhækkana á aðföngum og launahækkanir skv. nýjum kjarasamningum sl. sumar hefur stjórn skólans ásamt skólanefnd ákveðið að hækka verðskrá mötuneytis og þvottahúss á vorönn 2012. Nánar

Skóladagatal Framhaldsskólans á Laugum, 2011 - 2012

Smelltu hér (pdf)

inna-logo moodlelogo