Hækkun á gjaldskrá
Vegna mikilla verðhækkana á aðföngum og launahækkanir skv. nýjum kjarasamningum sl. sumar hefur stjórn skólans ásamt skólanefnd ákveðið að hækka verðskrá mötuneytis og þvottahúss á vorönn 2012. Þá hefur þátttaka skólans í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli haft sitt að segja í hækkun á kostnaði vegna innkaupa í mötuneyti. Við bendum nemendum, foreldrum og forráðamönnum á að kynna sér nýja gjaldskrá fyrir vorönn 2012.
