Kynningarvefur Framhaldsskólans á Laugum

laugar-postkort-kynning

"Framhaldsskólinn á Laugum er besti skóli sem ég hef farið í :) mæli með honum!"
- nemandi á 4. ári

Má bjóða þér að bætast í hóp þeirra ánægðu nemenda sem stunda nám við Framhaldsskólann á Laugum? Hér á síðunni finnur þú ýmsar gagnlegar upplýsingar um skólann sem hjálpa þér að kynnast skólanum betur.

Framhaldsskólinn á Laugum er heimavistarskóli í sveit, nemendur eru milli 100 og 120 talsins og skapast því sérstök og heimilisleg stemming í skólanum ár hvert þar sem allir þekkja alla. Meira að segja kennararnir eru fljótir að þekkja þig með nafni og sama má segja um starfsfólkið. Í skólanum er því persónulegt umhverfi þar sem auðvelt er að fá aðstoð við hvað það sem upp kemur, hvort sem það er í náminu eða einhverju öðru.

laugar-kynning1Í skólanum er unnið eftir nýju námsfyrirkomulagi sem hefur verið þróað í skólanum á undanförnum árum, en það felur í sér að kennslustundum sem merktar eru ákveðnum námsgreinum á stundatöflu, t.d. íslensku eða stærðfræði, er fækkað en í staðinn vinna nemendur í vinnustofum þar sem þeir ákveða sjálfir hvaða viðfangsefni þeir glíma við á hverjum tíma. Námsáætlun er því einstaklingsbundin og reynt er að koma til móts við þarfir hvers og eins. Tveir til þrír kennarar eru nemendum innan handar í vinnustofum en þær eru nokkrar og er misjafnt hvernig vinnuumhverfið er á hverjum stað, svo nemendur geta valið við hvernig aðstæður þeim þykir best að vinna. Með þessu nýja fyrirkomulagi verður skóladagurinn samfelldur, þ.e. það eru engar eyður á milli tíma, heldur byrja allir nemendur í skólanum á sama tíma og ef vel er haldið á spöðunum er hægt að klára heimanám og þar með ljúka vinnudeginum á skólatíma. Það verður því meiri tími eftir skóla til að sinna áhugamálum, svo sem að nýta hina frábæru íþróttaaðstæðu sem er við skólann og fara í ræktina eða á íþróttaæfingu. Nánari upplýsingar um námsfyrirkomulagið eru að finna undir námið.

laugar-kynningHér til hægri eru nokkrir kassar með tenglum svo þú getur kynnt þér ýmis mál betur. Þarna eru upplýsingar um námið á Laugum þar sem þú getur skoðað betur námsfyrirkomulagið og námsbrautirnar, aðstaðan á Laugum en þar geturðu séð hvernig náms-, íþrótta- og félagsaðstaðan er í skólanum. Að búa á heimavist er einstök upplifun, þar undir geturðu skoðað myndir af heimavistunum, fengið upplýsingar um mötuneytið og þvottahúsið, séð dæmi um kostnað við það að vera á heimavist ásamt því að líta á hvernig félagslífi nemenda er háttað.

Innritun í skólann fer fram á síðunni menntagatt.is. Innritun fyrir vorönn 2012 verður frá 1.- 22. nóvember 2011.

Hafir þú frekari spurningar skaltu endilega hafa samband og við munum gera okkar besta til að aðstoða þig og leiðbeina.

Sími: 464 6300 / 464 3112
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Innritun í skólann