Námið

Við Framhaldsskólann á Laugum er unnið eftir skólastefnunni sveigjanlegt námsumhverfi - persónubundin námsáætlun.
Sveigjanlegt námsumhverfi felur í sér að vinnudagurinn er samfelldur. Vinnutími nemenda skiptist í fagtíma og vinnustofur. Í fagtímum eru nemendahópar með fagkennurum eins og í hefðbundinni kennslu.
Í vinnustofum vinna stórir hópar nemenda saman í rými undir leiðsögn tveggja eða fleiri kennara. Nemendur skipuleggja vinnu sína sjálfir og þannig geta þeir lagt sérstaka áherslu á þau fög sem þeir vilja bæta sig í. Þetta gerir þeim einnig kleyft að velja vinnuaðferðir sem þeim henta best.
Hið sveigjanlega námsumhverfi eykur ábyrgð nemenda á námi sínu og eflir sjálfstæði í vinnubrögðum.
Í þessu námsumhverfi geta nemendur hagað sinni vinnu þannig að eþir ljúki stúdentsprófi á 2-3 árum. Jafnframt geta þeir sem það vilja, lokið stúdentsprófi á 4-5 árum.
Persónubundin námsáætlun
Við upphaf náms fær hver nemandi leiðsagnarkennara sem fylgir honum út skólagönguna. Í sameiningu gera þeir áætlun um námsframvindu nemandans, til skemmri tíma og lengri. Hver og einn fær persónulega leiðsögn og aðstoð við að meta styrkleika sína og veikleika.
Upplýsingatækni er lifandi þáttur í skólastarfinu og forsenda þess að hægt sé að vinna í þessu námsumhverfi. Mikilvægt er fyrir nemendur að hafa ávallt gott aðgengi að öllum námsáætlunum, verkefnum og námsmati í kennsluumsjónarkerfi skólans. Nemendur geta nýtt eigin fartölvur en einnig er aðgangur að tölvum í vinnustofu á Sal og á bókasafni skólans.
