Ferðamálabraut

Ný ferðamálabraut mun koma að fullu til framkvæmda með nýrri skólanámskrá sem unnið er að í skólanum og stefnt er að innleiða haustið 2013. Jafnframt verður á vorönn 2012 kenndur grunnáfangi á ferðamálabrautinni, FER 103. Kennari verður Margrét Hólm Valsdóttir, B.S. í viðskiptafræði og diploma í ferðamálafræði.

Markmið brautarinnar

Um er að ræða 60 eininga námbraut sem getur verið hluti náms til stúdentsprófs eða lokið með útskrift af ferðamálabrautinni. Námið eykur starfshæfni þeirra sem útskrifast af brautinni og auðveldar þeim að fá vinnu hjá ferðaþjónustufyrirtækjum. Eins er námið góður undirbúningur fyrir þá sem hyggja á framhaldsnám í ferðamálafræðum.

  • Nemendur kynnist því svæði sem skólinn starfar á með nýjum hætti.
  • Betri undirbúningur til náms í ferðamálafræðum á háskólastigi hérlendis og erlendis.
  • Tengja nám við atvinnulíf með starfsnámi innan ferðaþjónustufyrirtækja.
  • Auka möguleika nemenda til vinnu innan ferðaþjónustunnar.
  • Auka sérstöðu skólans og tryggja framtíð hans.
  • Skólinn verði lifandi þáttur í þróun ferðaþjónustu á svæðinu.

Námsgreinar

Faggreinar:

  • FER 103 – Ferðafræði (grunnáfangi ferðamálabrautar)
  • FER 202 – Ferðalandafræði
  • FER 212 – Ferðaþjónusta og menning
  • FER 222 – Markaðsfræði ferðamála
  • FER 232 – Viðburðastjórnun
  • FER 343 – Umhverfisfræði ferðamála
  • FOV 103 – Framreiðsla og veitingar
  • GES 103 – Gestamóttaka og gististaðir

Almennar greinar:

  • Tungumál 26 einingar, þó að lágmarki 6 einingar í íslensku og 6 einingar í ensku. Aðrar tungumálaeiningar geta farið eftir því hvaða tungumál hver nemandi hefur á valdi sínu.

Val:

  • 6 einingar

Starfsnám:

  • SNF 106 – Starfsnám í ferðaþjónustu