Íþróttabraut
Íþróttabraut skólans er framsækin braut og njóta nemendur góðs af þeirri góðu íþróttaaðstöðu sem er á Laugum.
Nemendur á íþróttabraut geta valið milli þess að fara þjálfunarstíg eða kennslufræðistíg í námi sínu.
- Þjálfunarstígur
hefur tengingu við náttúrufræðibrautog hefur það að markmiði að undirbúa nemendur undir margskonar þjálfun og heilsurækt, svo sem íþróttaþjálfun, einkaþjálfun, almenna heilsurækt og einnig fyrir frekara nám í íþróttafræðum á háskólastigi. - Kennslufræðistígur
hefur tengingu við félagsfræðibrautog hefur það að markmiði að undirbúa nemendur undir störf innan íþróttahreyfingarinnar, s.s. stjórnunarstörf í íþróttafélögum og einnig fyrir nám í kennslufræðum á háskólastigi.
Sérnám íþróttabrautar
-
Starfsnám: Nemendur sinna ýmist þjálfun eða kennslu á grunnskólabörnum og/eða almenningi samhliða skólanum. Þeir standa einning fyrir mótum yfir vetrartímann og öðlast þannig mjög góða verklega reynslu á fjölmörgum þáttum á sviði íþrótta og heilsuræktar.
-
Íþróttafræði: Hér er fræðilegi þáttur íþróttaiðkunar skoðaður. Farið er í m.a. þjálffræði, íþróttasálfræði og líkams- og lífeðlisfræði svo fátt eitt sé nefnt. Öll kennsla miðast við að tengja námið við raunveruleg viðfangsefni, eins og t.d. starfsnámið, og er áherslan lögð á að nemendur tileinki sér ákveðin vinnubrögð og geti nýtt sér þá þekkingu sem þeim er veitt í frekara nám eða í störfum innan íþróttahreyfingarinnar.
- Kynning á fjölbreyttum íþróttagreinum
- Fótbolti
- Körfubolti
- Handbolti
- Blak
- Vetraríþróttir
- Spaða- og kylfuíþróttir
- Fimleikar
- Sund
- Frjálsar íþróttir
- Óhefðbundnar íþróttir
