Tilgangur og markmið
Tilgangur
• Að gera skólann að betri skóla
• Að auka gæði náms við skólann
• Að geta sinnt öllum nemendum skólans á einstaklingsmiðaðan hátt, þar sem tekið er tillit til námsgetu og þroska hvers einstaklings fyrir sig
• Að auka ábyrgð nemandans á eigin námi
• Að auka möguleika nemenda til að hraða námi sínu
• Að búa nemendum námsumhverfi sem undirbýr þá enn betur undir þátttöku í atvinnulífi og frekara nám, m.a. með samfelldum skóladegi
• Að halda betur utan um nemendur félagslega og námslega, m.a. með efldu umsjónarstarfi
• Að beita fjölbreyttari námsaðferðum
• Að auka möguleika kennara til samstarfs og samvinnu
• Að stuðla að framþróun í notkun upplýsingatækni við skólann
• Að auðvelda innra og ytra mat skólans
• Að auðvelda aðlögun skólans að þeirri breytingu sem stytting náms til stúdendspróf hefur í för með sér
Markmið
• Að allur skólinn fylgi fyrirkomulagi sveigjanlegs námsumhverfis
• Að allir nemendur stundi nám samkvæmt persónubundinni námsáætlun
• Að bæta námsárangur
• Að bæta mætingu og minnka brottfall
• Að bæta líðan nemenda í skólanum
• Að breyta náms- og vinnuumhverfi þannig að upplýsingatækni sé lifandi þáttur í starfsemi skólans
• Að skapa skólanum sérstöðu
• Að auka aðsókn að skólanum
• Að treysta rekstur skólans
