Þróunaráætlun

Áætlað er að þróunarverkefnið sveigjanlegt námsumhverfi – persónubundin námsáætlun taki 3 ár. Í fyrsta áfanga, þ.e. veturinn 2006-2007, er innleitt breytt náms- og kennslufyrirkomulag hjá fyrsta árs nemum. Í næsta áfanga, þ.e. veturinn 2007-2008, á öll kennsla og þar með allir nemendur skólans að vera komnir í þetta nýja námsumhverfi. Þriðji og síðasti áfanginn á að koma til framkvæmda veturinn 2008-2009. Þá er ráðgert að allir vinni samkvæmt persónubundinni námsáætlun.

Með sveigjanlegu námsumhverfi er átt við að nemendur stundi nám sitt í opnu vinnurými undir verkstjórn kennara, auk þess sem kennarar eru með ákveðnar kennslustundir. Þetta kallar á aðrar og fjölbreyttari námsaðferðir, svo sem uppgötvunarnám, jafninganám, leitarnám, samvinnunám o.s.frv. Með þessu verður skóladagurinn samfelldur og það gefur nemandanum færi á að nýta tíma sinn betur, bæði til náms og tómstunda.

Með persónubundinni námsáætlun er átt við að nemandanum sé gert kleyft að stunda nám sitt og haga námshraða sínum út frá þroska, námslegri færni og félagslegri stöðu. Með þessu námsfyrirkomulagi þarf kennarinn á hverjum tíma að vera meðvitaður um stöðu nemanda síns, félagslega og námslega og reiðubúinn að miðla henni til nemenda og forráðamanna ólögráða nemenda.

Með sveigjanlegu námsumhverfi og persónubundinni námsáætlun opnast möguleiki til að sinna öllum nemendum sem einstaklingum, bæði þeim sem standa höllum fæti í námi og ekki síður þeim sem búa yfir mestri námslegri færni. Nemendur geta tekið ákveðna námsáfanga eða námsbrautir á þeim hraða sem þeir ráða við og í boði eru hverju sinni.