Umsagnir nemenda

Frá matsfundum Ingvars Sigurgeirssonar með nemendum í mars 2007

Punktar úr minnisblaði:

Vinnustofa
Ágætur bragur ríkti í vinnustofu og flestir nemendur sinntu viðfangsefnum sínum vel; lestri, stærðfræði, ritgerðasmíð, skýrslugerð og tölvuvinnu. Eins og í fyrri heimsókn vakti athygli að flest verkefni sem nemendur voru að fást við voru einstaklingsverkefni. Þeir nemendur sem komnir voru nýttu tíma sinn ágætlega. Samskipti nemenda og kennara voru sem fyrr jákvæð og óþvinguð og bragur allur afslappaður og þægilegur.

Matsfundir með nemendum: Nokkrir af þeim atriðum sem nemendur nefndu þegar þeir áttu að nefna það sem jákvætt væri við skólann.

• Skólinn er lítill og persónulegur („Það er litið á okkur sem einstaklinga en ekki sem númer“).
• Kennararnir hjálpa manni mikið og villja allt fyrir okkur gera.
• Kennaranir hjálpa okkur sem einstaklingum en ekki sem hóp.
• Byggt er á stöðugu mati (símati) og próf hafa ekki mikið vægi.
• Allir nemendur nema einn lýstu mikilli ánægju sinni með lotukerfið. (hver önn er 2 lotur)
• Samstarf kennara og nemenda.
• Kennararnir taka mark á okkur..
• Skólinn er vel staðsettur (fallegt umhverfi).
• Á heimavistinni kynnumst við fólki öðruvísi.
• Gott og skapandi umhverfi.
• Góð íþróttaaðstaða.
• Gott félagslíf
• Við eignumst góða vini.
• Sveigjanleiki með svo margt, t.d. velja viðfangsefni í vinnustofum.
• Persónulegt – alltaf hægt að fá hjálp
• Sniðugt vinnustofukerfi.
• Gott að byrja 8:30 – maður er betur vaknaður.
• Góð staðsetning og umhverfi.
• Gott að vinna hér inni í vinnustofunum.
• Gott námsumhverfi

Þegar niðurstöður fundanna eru teknar saman virðist m.a. mega draga eftirfarandi fram:

• Viðhorf nemenda til kennanna og skólans eru yfirleitt mjög jákvæð. Nemendur kunna vel að meta persónulega nálgun og góð samskipti.
• Nemendur eru, með örfáum undantekningum, ánægðir með kennsluna. Einnig eru þeir sáttir við fyrirkomulag námsmats.
• Nemendur eru flestir fremur jákvæðir gagnvart vinnustofufyrirkomulaginu.

Punktar úr uppgjöri nemenda á 1. ári í maí 2007

“Þetta er búinn að vera frábær vetur. Það eru margir kostir við þennan skóla. Hann er í frábæru og fallegu umhverfi, íþróttaaðstaðan hérna er frábær.”

“Námið og árangurinn hjá mér í vetur hefur persónulega gengið framar öllum vonum, hef aldrei fengið svona háar einkunnir…Mér hefur sjaldan liðið jafn vel og þetta vinnustofukerfi er allavegana mjög hentugt fyrir flesta.”

“Skólaveturinn finnst mér vera búinn að vera mjög fínn. Þegar ég kom í skólann vissi ég ekkert hvernig hann væri og mér finnst hann frábær. Mér gengur mun betur að læra hérna heldur en í grunnskóla og það hlýtur að þýða að þetta sé gott skipulag og góð kennsla… mér líður mjög vel hérna í skólanum…. Ég er mjög ánægð með skólann og vona að hann verði bara betri á næsta ári í öllum þessum breytingum.”

“Þetta var fínt skólaár… ég var virkilega ánægð með árangurinn í náminu… Vinnustofurnar henta mér mjög vel og verður gaman að sjá þetta næsta vetur þegar allir í skólanum eru komnir í þetta kerfi.”

“Þær væntingar sem ég hafði til skólans stóðust alveg. Sumir kennarar eru auðvitað betri en aðrir og sum fög erfiðari en önnur og þar koma vinnustofurnar vel að notum, þar sem hægt er að spurja um hjálp frá kennurunum sem þar eru. Ég vil halda vinnustofukerfinu áfram næsta vetur…”