Þórshöfn

Menntasetrið á Þórshöfn

Menntasetrið á Þórshöfn var opnað á árinu 2009 , en þar er rekin framhaldsskóladeild Framhaldsskólans á Laugum í nánu samstarfi við skólann.

Langanesbyggð stendur að baki verkefninu og hefur lagt til húsnæði til starfseminnar.  Í Menntasetrinu á Þórshöfn er einnig mönnuð starfsstöð Þekkingarnets Þingeyinga sem býður jafnframt fjarfundabúnaði til kennslu, náms og funda, lesrými fyrir fjarnema og aðstöðu til prófatöku.