Nemendur
Í gegnum tíðina hafa nemendur Framhaldsskólans á Laugum komið allsstaðar að frá landinu. Það hefur þann kost að hafa stundað nám á Laugum hefur maður eignast vini út um allt land! Þar sem fjöldi nemenda er aðeins í kringum 100 talsins verður allt svo persónulegt og heimilislegt, allir þekkja alla og sterk vinabönd myndast.
Nemendum skólans hafa aðstöðu til ýmiskonar félags- og tómstundastarfs en það má segja að það sé að vissu leyti undir nemendunum sjálfum komið hvernig þeir haga og skipuleggja félagslífið.
Frá árinu 1994 hefur skólinn útskrifað um 200 stúdenta, en hér má finna lista yfir útskrifaða stúdenta.
Þeir nemendur sem stundað hafa nám á Laugum minnast þess alla ævi. Á útskriftarathöfnum sést glögglega hversu mikil áhrif námsárin á Laugum hafa þegar gamlir Lauganemar koma aftur heim að Laugum og segja sögur frá veru sinni hér.
