Jafnréttismál
Í Framhaldsskólanum á Laugum er lögð áhersla á að sérhver einstaklingur njóti jafnréttis án tillits til kynferðis, þjóðernis, trúar, kynhneigðar, litarháttar eða búsetu.
Að þessu er meðal annars stuðlað með því að:
• gæta þess að einstaklingum sé ekki mismunað í daglegum samskiptum
• gæta jafnréttis við inntöku nemenda
• gæta umburðarlyndis í samskiptum
• flétta fræðslu um jafnréttismál inn í skólastarfið eftir því sem við verður komið
• vinna gegn hvers konar fordómum eftir því sem færi gefst
• leggja áherslu á að búa alla jafnt undir virka þátttöku í samfélagi, fjölskyldu- og atvinnulífi
