Löng helgi

Sú hefð hefur skapast í skólanum að á haustönninni og stundum á vorönninni ( fer eftir því hvenær páskaleyfið er hverju sinni ) sé svonefnd löng helgi. Þá er allt starf í skólanum fellt niður á mánudegi og þriðjudegi þessa löngu helgi. Allir nemendur fara þá heim til sín eða annað og vistum og mötuneyti er lokað sídegis á föstudegi og opnað aftur seinni part þriðjudags. Þessi helgi er merkt inn á skóladagatal og fá nemendur upplýsingar um hana/þær í upphafi skólaárs, þannig að allir eiga að geta gert ráðstafanir um verustað með góðum fyrirvara.