Umgengnisreglur
Með því að greiða innritunargjald (staðfestingargjald) hafa nemendur gert samning við yfirvöld skólans um ástundun náms og góða umgengni. Þeir hafa þar með samþykkt þær reglur sem gilda í skólasamfélaginu í heild og þeir heita að undirgangast þær og virða. Sé gegn þessum reglum brotið, getur það varðað brottvísun úr skólanum.
Almennar reglur skólans
• Nemendur skulu sækja allar kennslustundir og mæta stundvíslega til kennslu.
• Nemendur skulu sýna hver öðrum og starfsfólki skólans tillitsemi og virðingu.
• Nemendum ber að hlíta þeim reglum sem kennari setur í kennslustund.
• Nemendum ber að ganga vel um allar eigur skólans og umhverfi.
• Reykingar eru með öllu óheimilar í húsum skólans og á skólalóð. Önnur tóbaksnotkun er með öllu óheimil í húsum skólans.
• Óheimilt er með öllu að neyta, varðveita eða vera undir áhrifum áfengra drykkja eða annarra vímuvaldandi efna í húsum skólans, á skólalóð, svo og á ferðalögum, samkomum eða öðru á vegum skólans.
