Reglur um próf

1. Í upphafi prófs skulu nemendur ganga úr skugga um: 
a) Að prófgögn þeirra séu rétt. 
b) Að þeir hafi á prófstað aðeins þau hjálpargögn sem tilgreind eru á forsíðu prófblaðsins.

2. Yfirsetufólk kallar til kennara í viðkomandi áfanga ef próftaki óskar eftir því. Þeir eiga ekki að svara spurningum varðandi prófverkefnið.

3. Nemendum er óheimilt að ávarpa hvern annan í prófum. Þeir eiga að gefa yfirsetufólki merki með handauppréttingu ef þeir þurfa á aðstoð að halda.

4. Próftökum er óheimilt að yfirgefa prófsalinn á meðan á próftíma stendur.

5. Hvorki má hafa farsíma nálægt sér né hafa kveikt á farsíma í eða við stofu þar sem próf er haldið.

6. Óheimilt er að skila úrlausn fyrr en liðnar eru 45 mínútur af próftímanum hið minnsta.

7. Nemendum ber að yfirgefa prófsalinn tafarlaust er próftíma lýkur og skila öllum blöðum vel merktum til yfirsáta.

8. Mæti nemendi of seint til prófs, skal hann snúa sér til prófstjóra, sem getur heimilað honum að taka prófið ef minna en 30 mínútur eru liðnar af próftímanum. Nemandinn verður að yfirgefa prófsalinn á sama tíma og aðrir.

9. Verði nemandinn uppvís að prófsvindli eða broti á prófreglum skal honum þegar vísað til prófstjóra sem ákvarðar hvort nemandanum skuli vísað frá prófi. Skólaráð kveður á um frekari viðurlög.

10. Telji nemandi sig þurfa undanþágu frá prófreglum, ber honum að hafa samband við prófstjóra áður en prófatíð hefst.

11. Ef um veikindaforföll er að ræða ber að tilkynna skrifstofu skólans þau áður en próf á að hefjast. Veikindi verður að staðfesta með læknisvottorði strax að veikindum loknum.