Starfssvið

Skólameistari
Valgerður Gunnarsdóttir
s. 464 6301, heimas. 464 3113, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Í því felst m.a. að hann ber ábyrgð á rekstri hans, húsum, munum og tækjum, sjóðum, framkvæmdum, inntöku nemenda, kennslu og fjárreiðum öllum. Hann gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á að fylgt sé fjárhagsáætlun skólans og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans. Hann hefur yfirumsjón með starfsmönnum og ber ábyrgð á innra mati skólans, kynningu á starfsemi hans og að upplýsingar um ólögráða nemendur berist forráðamönnum þeirra

Áfangastjóri
Hallur B. Reynisson
sími 464 6302, heimasími 464 3242, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. - Heimasíða
Áfangastjóri hefur umsjón með rekstri áfangakerfis við skólann. Hann hefur yfirumsjón með gerð stundaskrár og er ráðgjafi nemenda og aðstoðarmaður varðandi val þeirra á áföngum og skipulag þeirra á náminu í samráði við námsráðgjafa. Þá hefur áfangastjóri umsjón með skipulagi og framkvæmd prófa. Hann hefur umsjón með skráningu námsferla, einkunna og fjarvista. Áfangastjóri er staðgengill skólameistara og honum til fulltingis um daglegan rekstur skólans.

Námsráðgjafar

María Jónsdóttir
sími 464 6318, heimasími 588 0112, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Sverrir Haraldsson
sími 464 6304, heimasími 464 3126, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Námsráðgjafi er nemendum til ráðuneytis og aðstoðar við lausn vandamála sem tengjast námi eða félagslegum þáttum skólavistarinnar. Námsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu. Hann er ráðunautur kennara um vandamál nemenda og hefur samband við forráðamenn nemenda í samráði við þá og skólameistara. Hann sér um náms- og starfsfræðslu skólans og annast ráðgjöf um náms- og starfsval nemenda. Námsráðgjafi hefur fasta viðtalstíma, sem auglýstir eru í upphafi annar.

Verkefnisstjóri Þórshafnardeildar Framhaldsskólans á Laugum
Hildur Stefánsdóttir
sími 8950834 netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Skólasafnvörður
Þóra Fríður Björnsdóttir
sími 464 6305, heimasími 464 3128, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Skólasafnvörður veitir forstöðu bókasafni skólans. Hann annast m.a. innkaup á gögnum fyrir safnið, sem þjónar bæði nemendum og kennurum skólans. Skólasafnvörður aðstoðar nemendur og kennara við heimildaleit og upplýsingaöflun og leiðbeinir þeim um notkun safnsins.

Netstjóri og tækjavörður
Ingólfur Sigfússon
sími 464 6307, heimasími 464 3110, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Netstjóri hefur umsjón með tölvukerfi skólans. Hann fylgist með hugbúnaði og annast endurnýjun og viðhald kerfisins. Tækjavörður hefur umsjón með kennslutækjum og nýtingu þeirra. Hann annast viðhald og viðgerðir á tækjakosti skólans.

Fjármálastjóri
Ragnheiður Þórhallsdóttir
sími 464 6303 netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Fjármálastjóri er skólameistara til aðstoðar við fjárlagagerð og daglegan rekstur. Hann sér um öll innkaup fyrir stofnunina, annast bókhald í samráði við Ríkisbókhald og Ríkisendurskoðun og hefur eftirlit með bókhaldi nemenda. Fjármálastjóri fer einnig með bókhald mötuneytis.

Ritari
Kristjana Kristjánsdóttir
s. 464 6300, heimas. 464 3444, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Auk venjulegra skrifstofustarfa annast ritari ýmiskonar afgreiðslu í þágu nemenda, kennara og annars starfsfólks. Ritari er jafnframt tengiliður skólans við íbúa heimavistar.

Bryti
Kristján Guðmundsson
s. 464 6308, heimas. 464 3213, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Bryti hefur yfirumsjón með mötuneyti skólans. Í því felst m.a. matseld, innkaup og umsjón með ráðningu og verkstjórn aðstoðarfólks.

Þvottastjóri
Aðalbjörg Tryggvadóttir
heimas. 464 1402, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þvottastjóri hefur umsjón með þvottahúsi skólans og annast þvott af öllum heimavistarbúum eftir reglum sem kynntar eru nemendum á hverju hausti.

Húsverðir
Skólahús/heimavistir:
Baldvin Áslaugssson, heimas. 464 3175, GSM 896 4153, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Íþróttahús:
Sveinn Pálsson, s. 464 6309, GSM 8487743, heimas. 464 2058, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  
Húsverðir hafa eftirlit með húsnæði skólans og öðrum eignum hans í umboði skólameistara. Á skólatíma sér húsvörður heimavista um að reglum þar sé fylgt.

Húsbændur
Hlynur Snæbjörnsson GSM 8617607, Ingólfur Víðir Ingólfsson GSM 8629822, Guðmundur Ágúst Jónsson GSM 8934906, Guðmundur Örn Jónsson GSM 8693760, Hörður Sigurðsson GSM 8996337, Þorsteinn Björgvin Aðalsteinsson GSM 8650977
Húsbændur hafa eftirlit með heimavistum og gæta þess að farið sé að reglum. Þeir eru nemendum innan handa með ýmislegt það sem upp kann að koma utan venjulegs skólatíma.

Félagsráðunautur
Félagsráðunautur er nemendum til ráðuneytis um félagsstörf og annast fyrirgreiðslu af skólans hálfu.

Skólanefnd
Í skólanefnd sitja fimm menn. Tveir eru skipaðir samkvæmt tilnefningu sveitarfélaga þeirra sem að skólanum standa og þrír án tilnefningar. Nefndin er skipuð til fjögurra ára en kýs sér formann til eins árs í senn. Áheyrnarfulltrúar eru tveir, með málfrelsi og tillögurétt. Annar er tilnefndur af kennurum skólans en hinn af nemendum og eru þeir tilnefndir til eins árs í senn. Skólameistari situr fundi skólanefndar með málfrelsi og tillögurétt, auk þess sem hann er framkvæmdastjóri nefndarinnar. Hlutverk skólanefndar er m.a. að marka áherslur í starfi skólans. Hún gerir árlega starfs- og fjárhagsáætlun fyrir skólann til þriggja ára sem háð er samþykki menntamálaráðherra. Í upphafi hvers árs gerir skólanefnd fjárhagsáætlun í samræmi við niðurstöður fjárlaga.

Skólaráð
Skólaráð eða skólastjórn er skipuð skólameistara, tveimur fulltrúum kennara og tveimur fulltrúum nemenda. Auk þess situr áfangastjóri í skólaráði. Skólaráð á að vera skólameistara til aðstoðar og ráðgjafar við stjórn skólans. Það er því vettvangur nemenda til að fylgjast með og hafa áhrif á ákvarðanir í málefnum skólans. Þannig er skólaráð tengiliður milli kennara, nemenda og yfirstjórnar skólans. Skólameistari er oddviti skólaráðs og stýrir fundum þess.

Nemendaráð
Nemendafélag skólans setur sér lög og kýs fulltrúa í nemendaráð. Auglýst er eftir framboðum og kjörstjórn annast kosningar. Nemendaráð hefur yfirumsjón með félagslífi og er ábyrgt fyrir þeim hluta nemendagjalda, sem til þess renna. Það ráðstafar fé til einstakra klúbba og starfsemi þeirrra. Gjaldkeri þess hefur bókhald með höndum og stendur skil á því til fjármálastjóra og skólastjórnar.

Kennarar
Kennarar eru sérfræðingar, hver í sinni kennslugrein. Þeir sjá um daglega kennslu og skipuleggja hana í samráði við deildarstjóra. Þeir afhenda nemendum kennsluáætlun í byrjun hverrar annar.