Þjónusta

Starfsfólk Framhaldsskólans á Laugum leggur metnað sinn í að veita nemendum skólans bestu mögulegu þjónustu. Í Gamla skóla er starfsfólk á hverju strái sem er boðið og búið til að veita sína þjónustu.
Á skrifstofu skólans í anddyrinu starfar ritari sem veitir upplýsingar um það sem lýtur að skólastarfinu ásamt ýmiskonar annarri aðstoð og afgreiðslu.
Námsráðgjafi eru tveir. Sverrir námsráðgjafi hefur aðsetur í anddyrinu og María námsráðgjafi hefur aðsetur inn af Bjarmalandi. Námsráðgjafar aðstoða nemendur við lausn vandamála sem tengjast námi eða félagslegum þáttum skólavistarinnar.
Á efstu hæð er bókasafn skólans þar sem safnverðir aðstoða nemendur og kennara við heimildaleit og upplýsingaöflun ásamt því að leiðbeina þeim um notkun safnsins.
Í mötuneytinu sér kokkurinn og föruneyti hans um að matreiða ofan í nemendur og starfsfólk.
Í kjallaranum er þvottahús þar sem þvottastjóri þvær, þurrkar og brýtur saman þvott nemenda.
Sömuleiðis hafa í kjallaranum aðsetur tölvu- og tækjaumsjónarmaður, sem veitir upplýsingar og aðstoðar nemendur við það sem snýr að tölvumálum, og húsvörður sem hefur eftirlit með húsnæði skólans og er nemendum innan handar ef upp koma vandamál á heimavistum er tengjast húsnæðinu sjálfu.
Þá eru húsbændur á vakt öll kvöld vikunnar og eru nemendum innan handar með ýmislegt sem kann að koma upp utan venjulegs skólatíma.
