Heimildaskráning og tilvísanir

Hér á eftir er yfirlit yfir reglur um skráningu heimilda og meðferð tilvísana.
Nemendur eru vinsamlega beðnir að fylgja þessum reglum við alla heimildavinnu við Framhaldsskólann á Laugum.
Reglurnar eru í samræmi við Handbók um ritun og frágang og vísast í hana ef nánari upplýsinga er þörf.

Skráning heimilda í heimildaskrá

Bók eftir einn íslenskan höfund

Einar Már Guðmundsson. 1997. Fótspor á himnum. Mál og menning, Reykjavík.

Bók eftir einn erlendan höfund

Martindale, Andrew. 1985. Gothic Art. Thames and Hudson, London.

» Sé bók eftir fleiri en einn höfund er nöfnum þeirra raðað eins og þau koma fyrir á bókarkápu.

Bók eftir tvo íslenska höfunda

Ingibjörg Axelsdóttir og Þórunn Blöndal. 1995. Handbók um ritun og frágang.
4. útgáfa. Iðunn, Reykjavík.

Bók eftir tvo erlenda höfunda

Fromkin, Victoria, og Robert Rodman. 1978. An Introduction to Language.
    Holt, Rinehart og Winston, New York.

Bók eftir þrjá eða fleiri íslenska höfunda

Einar Már Jónsson, Loftur Guttormsson og Skúli Þórðarson. 1981.
     Mannkynssaga. Tuttugasta öldin. Fyrra bindi (1914-1945). Hið íslenska      
     bókmenntafélag, Reykjavík.

Bók eftir þrjá eða fleiri erlenda höfunda

Greenberger, Martin, Julius Aronofsky, James L. McKenney og William F. Massy, 
     ritstj. 1974. Networks for Research and Education: Sharing of Computer and  
     Information resources Nationwide
. MIT Press, Cambridge.

» Takið eftir að orðin í heitum erlendra bóka eru skrifuð með stórum stöfum, nema smáorð. 

Höfundar ekki getið

Sturlunga saga I. 1988. Örnólfur Thorsson ritstj. Svart á hvítu, Reykjavík.

Greinasafn eftir einn höfund

Halldór Laxness. 1972. Af skáldum. Hannes Pétursson valdi efnið. 
     Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykjavík.


Grein í greinasafni eftir marga höfunda

Anna Valdimarsdóttir. 1994. Listin að elska, listin að lifa. Fjölskyldan, uppspretta lífsgilda. Landsnefnd um Ár fjölskyldunnar : 
     Félagsmálaráðuneytið, Reykjavík.

Þýðing

Stoppard, Miriam. 1993. Barnalæknirinn. Ólafur Grétar Kristjánsson íslenskaði. 
     Iðunn, Reykjavík.

Ritsöfn og sýnisbækur

Guðrún Bjartmarsdóttir (ritstjóri). 1988. Bergmál. Sýnisbók íslenskra þjóðfræða. 
     Mál og menning, Reykjavík.

Upplýsingar vantar

Ársæll Sigurðsson. [án árs]. Móðurmál. 1. hefti. Ríkisútgáfa námsbóka, Reykjavík.

Atli Harðarson. 1992. Tölvukver. [án útgáfustaðar], Aldamót.

Þorbjörn Broddason. 1987. Um fjölmiðla : greinasafn. Reykjavík, [án forlags]. 

Grein úr alfræðibók

1. Greinar merktar höfundi:
Hamilton, Clarence Herbert. 1964. Buddhism. Encyclopædia Britanncia 4:354-362. 
     William Benton, London.

2. Höfundar ekki getið:
Íslenska alfræðiorðabókin A-G. 1990. Búddatrú, bls. 224-225. 
     Ritstj. Dóra Hafsteinsdóttir og Sigríður Harðardóttir. Örn og Örlygur, Reykjavík.

Skýrsla

Aðalnámskrá grunnskóla. Móðurmál. 1989. Menntamálaráðuneytið, Reykjavík.

Bæklingur

1. Höfundar getið:
Svava Ólafsdóttir. [án árs]. Réttur þinn í samskiptum við hið opinbera
     Stjórnsýslulögin nýju. Bæklingur gefinn út af forsætisráðuneytinu.

2. Höfundar ekki getið:
Örorkulífeyrir. 1994. Tryggingastofnun ríksins, Reykjavík.

Grein úr tímariti

Ólafur Grétar Kristjánsson. 1995. Himnaríki er ekki fávitahæli. 
     Tímarit Mál og menningar, 3. tbl. 56. árg.: 48-57

Grein úr dagblaði

Orri Hauksson og Illugi Gunnarsson. 1997. Nýtingarréttur er séreign. Morgunblaðið
     14. september.

Ritdómur úr tímariti

Einar Már Jónsson. 1998. Ritdómur um Solku eftir Björn Th. Björnsson. 
     Tímarit Mál og menningar, 4. tbl. 59. árg.: 129-132

Ritdómur úr dagblaði

Sigríður Albertsdóttir. 1998. Ritdómur um Maríugluggann eftir Fríðu Á. 
     Sigurðardóttur. DV, 28. október.

Biblían

Biblían. Heilög ritning. Gamla testamentið og nýja testamentið. 1981. 
     Hið íslenska Biblíufélag, Reykjavík.

Útvarp / sjónvarp / myndband / hljóðrit

Einar Þór Gunnlaugsson. 1998. Á ferð í Nikaragúa. Ríkisútvarpið - Rás 1. 
     14. desember.

Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. 1997. Nærmynd - Vigdís Grímsdóttir rithöfundur
     Ríkissútvarpið - Sjónvarp. 14. september.

Hrefna Haraldsdóttir. 1998. Skáldatími - Hallgrímur Helgason. 27 mín. Hugsjón, 
     Reykjavík. Myndband.

Bach, Johann Sebastian. 1997. Johann Sebastian Bach. Pavilion, London. 
     Geisladiskur.

Efni af margmiðlunardiski

Mayo Clinic Family Health Book. 1992. Allergy. Interactive edition. 
     Aðalritstj. David E. Larson. Interactive Ventures, May Clinic-Mac, 
     Foundation for Medical Education and research.

Heimildir af vef

Fjölbrautaskóli Suðurnesja. 2009. Skólareglur.  Sótt 14. september 2009 af
     http//www.fss.is/skolinn/skolareglur/

    http://www.krabb.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=1316

     Morgunblaðsins 22. september 2009 af http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=1301256

     http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=53276

Gæsalappir

Heiti greinar úr tímariti eða bók er stundum haft í gæsalöppum. Hér er sú aðferð ekki sýnd í dæmunum en þeir sem kjósa geta notað þá aðferð.

Munnlegar heimildir

Munnlegar heimildir fá sérmeðferð. Þær eru ekki skráðar með öðrum heimildum heldur aftan við þær skriflegu og dagsetning þegar viðtalið fór fram: 

Jón Jónsson: Viðtal 13.12.1996.

Tilvísanir í heimildaskrá

Þegar beinar eða óbeinar tilvitnanir eru notaðar verður alltaf að geta heimildar. Til heimildar vísar maður svona: (Höfundur, ártal:blaðsíða). Dæmi: (Halldór Halldórsson, 1950:25). Þessar tilvísanir geta annað hvort verið í sviga eftir tilvitnuninni eða í neðanmálsgrein, neðst á blaðsíðunni. Dæmi 1

1 Halldór Halldórsson, 1950:25.