Safnkennsla
Safnkennsla felst í kynningu á skólasafninu og starfsemi þess, hvaða gögn eru á safninu og skipulagi safnkosts. Bókasafnskerfi safnsins er kynnt fyrir nemendum og þeir þjálfaðir í notkun þess, ennfremur að nemendur geri sér grein fyrir upplýsingagildi heimasíðu skólans. Kynntir verða innlendir og erlendir gagnagrunnar, leitarvefir og leitarvélar á netinu.
Kennarar hafa stundum óskað eftir safnkennslu fyrir sína hópa í upphafi verkefna- og ritgerðavinnu.
Nemendum eru þá kynntar helstu leiðir til heimildaöflunar í Gegni og öðrum gagnabönkum.
Kennsluvefur í upplýsingalæsi
Leiðbeiningar um heimildaleit og skráningu
Mjög góðar leiðbeiningar um heimildaleit er að finna á vef Bókasafns FVA (Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi).
Heimildaskráning og tilvísanir
