Útlán
• Flest gögn safnsins eru til útlána, en kennslubækur og orðabækur eru þó aðeins lánaðar einn dag í senn. Handbækur eru aðeins lánaðar innan skólans.
• Öll útlán eru tölvuskráð. Lánþegaskírteini eru geymd á bókasafninu.
• Ef bókavörður er ekki við þegar taka á bók að láni er lánþegi beðinn um að skrifa á miða, sem liggur á afgreiðsluborði, nafn sitt, titil bókar og númerið á strikamiðanum sem er aftan á bókinni og skilja miðann eftir á borði bókavarðar. Slík útlán verða færð inn í tölvukerfið síðar.
• Útlánstími er 14 dagar.
Millisafnalán
Ef tiltekið rit eða efni er ekki að finna á safninu er lögð áhersla á að útvega það í millisafnaláni.
