Mötuneyti

matsalurinn

Mötuneyti skólans er staðsett í Gamla skóla en þar ræður Kristján kokkur ríkjum. Honum til aðstoðar eru svona hinar óviðjafnanlegu eldhúskonur en saman framreiða þau dýrindis máltíðir ofan í nemendur og starfsfólk skólans. Nemendur á heimavist eru í fullu fæði sem samanstendur af fimm máltíðum fimm daga vikunnar og ætti enginn að finna fyrir hungri í dagsins önn.

  • Morgunmatur er áður en fyrsti tími hefst en bryddað var upp á þeirri nýbreytni í upphafi haustannar 2010 og var því vel tekið meðal nemenda að geta byrjað daginn á því að fara í morgunmat en áður var einn tími á undan.
  • Í hádeginu er að sjálfsögðu hádegismatur þar sem boðið er upp á fjölbreytta fæðu, allt frá hollum og staðgóðum fiski í löðrandi sveittan og djúsí hamborgara með frönskum og kokteilsósu. 
  • Um miðjan dag er kaffitími þar sem ýmiskonar góðgæti úr eldhúsbakaríinu er í boði. Hollustan er þó ávallt til staðar og þó svo að maður ætti alltaf að hafa hana í fyrirrúmi er auðvitað leyfilegt að gleyma henni um stund þegar hinir einstöku heimabökuðu súkkulaðisnúðar eru á boðstólum svo dæmi sé tekið.
  • Kvöldmatur er svo á sínum stað en ósköp gott er að borða eftir góða íþróttaæfingu eða byggja upp smá orku áður en haldið er á æfingu.
  • Kvöldkaffi þar sem boðið er upp á kaffi, mjólk og kex er síðasta máltíð hvers dags.

Þeir nemendur sem vilja vera í fæði um helgar þurfa að skrá sig fyrir hádegi hvern föstudag. Greitt er sérstaklega fyrir helgarfæðið.

Þeir nemendur sem vilja vera í fæði um helgar þurfa að skrá sig í það fyrir hádegi hvern föstudag.