Tölvumál
Í skólanum er háhraðanettenging sem kemur frá FS-netinu, sem er háhraðanet fyrir framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar á Íslandi.
Þráðlaus nettenging er í öllum kennslustofum og á flestum herbergjum en tenglar fyrir internet eru á öllum herbergjum.
Nemendur hafa aðgang að tölvum á bókasafni og í sal og anddyri Gamla skóla. Í þeim tölvum hafa nemendur aðgang að rými fyrir gagnageymslu.
Prentarar eru í sal í Gamla skóla, á bókasafni og í Dvergasteini. Nemendum er úthlutaður prentkvóti en svo er hægt að kaupa viðbót við kvótann en hvert blað kostar 10 krónur.
Tveir fjarfundarbúnaðir eru í skólanum, annar í fundarherbergi í Gamla skóla og hinn í kennslustofu í Dvergasteini.
Viðvera kerfisstjóra er sem hér segir:
Mánudaga - föstudaga: kl. 8:00 - 12:00
Kerfisstjóri er Ingólfur Sigfússon
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
