Tölvureglur
Reglur um tölvunotkun í Framhaldsskólanum á Laugum
Öllum nemendum er úthlutað notandanafni og aðgangsorði og hafa því allir nemendur aðgang að tölvuneti bæði í kennslustofum og á herbergjum. Öll notkun á tölvukerfi skólans, bæði á heimavistum og annarsstaðar, lýtur sömu reglum.
Tölvubúnaður Framhaldsskólans á Laugum er eign skólans og ætlaður til náms, kennslu, kynningar og annars þess sem samræmist markmiðum skólans.
• Handhafi notandanafns á tölvukerfi skólans er ábyrgur fyrir allri notkun þess.
• Skólinn áskilur sér rétt til að fara yfir, skoða og eyða gögnum á gagnasvæðum nemenda til að tryggja að reglum um notkun búnaðarins sé fylgt.
• Gert er ráð fyrir að hver nemandi hafi til umráða heimasvæði að hámarki 100 Mb nema sérstakt leyfi kerfisstjóra komi til. Við endurtekið brot er aðgangi lokað án frekari viðvörunar.
Óheimilt er:
• að veita öðrum aðgang að notandanafni sínu,
• að reyna að tengjast tölvubúnaði skólans með öðru notandanafni en því sem notandi hefur fengið úthlutað,
• að nota aðgang að neti skólans til þess að reyna að komast ólöglega inn á net eða tölvur í eigu annarra,
• að sækja, senda, geyma eða nota á neti eða í tölvum skólans forrit eða gögn sem hægt er að nota til innbrota, skemmdarverka eða annars ólöglegs athæfis,
• að breyta vinnuumhverfi á tölvum skólans þannig að það hafi áhrif á umhverfi og notkunarmöguleika annarra notenda,
• að breyta, afrita eða fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða gögn sem eru í eigu skólans,
• að afrita hugbúnað eða gögn í eigu annarra án leyfis eiganda,
• setja inn hugbúnað á tölvur skólans án samþykkis kerfisstjóra,
• að vísa á, senda, sækja eða geyma klámefni eða ofbeldisefni,
• að senda keðjubréf og annan ruslpóst, t.d. sams konar bréf á alla notendur, auglýsingar og aðrar fjöldasendingar,
• að nota leiki í tölvum skólans.
• Að öðru leyti er vísað til notkunarskilmála ISnets og notkunarreglna FS-netsins. Notendur kerfisins skulu að kynna sér þessar reglur þar sem þeir eru ábyrgir samkvæmt þeim
• Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvukerfi skólans eða fyrirvaralausrar brottvísunar úr skóla - sé um alvarleg eða endurtekin brot að ræða.
