| 28 stúdentar brautskráðir á Laugum |
| 21. maí 2010 |
Hátt á fjórða hundrað manns voru viðstaddir brautskráningu 28 stúdenta frá Framhaldsskólanum á Laugum í dag. Þetta er stærsti stúdentahópur sem brautskráðst hefur frá skólanum frá upphafi....... |
| |
| meira » |
|
|
| Brautskráning - skólaslit |
| 18. maí 2010 |
Við bjóðum til hátíðar í tilefni af brautskráningu nýstúdenta í íþróttahúsi Framhaldsskólans á Laugum, föstudaginn 21. maí 2010 kl. 14:00.
Brautskráðir verða stúdentar af félagsfræði-, náttúrufræði- og íþróttabraut.
Verið öll innilega velkomin og þiggið kaffiveitingar að athöfn lokinni.
Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum. |
| |
| meira » |
|

|

|
| Flóamarkaður á Laugum |
| 10. maí 2010 |
Í fyrradag, laugardaginn 8. maí, mættu næstum 100 manns á flóamarkað á Laugum í Reykjadal, til styrktar Rauða Krossinum og Haiti. Fyrsta klukkutímann vorum við úti undir beru lofti en þurftum að flýja vind rétt fyrir klukkan þrjú, þegar ýmislegt var farið að fjúka um svæðið........ |
| |
| meira » |
|
|
| Sumarið gerir vart við sig |
| 4. maí 2010 |
Í morgun var loksins komið almennilegt sumarveður á Laugum, krían mætt, nemendur taka endasprettinn í náminu ..... |
| |
| meira » |
|
| Um skólann |
Framhaldsskólinn á Laugum er heimavistarskóli í einni af fallegustu sveitum landsins. Þar er mjög góð aðstaða er til náms, félagslífs og íþróttaiðkunar og heimavistaraðstaða við skólann með því besta sem gerist á landinu.
Kennt er á fjórum námsbrautum í skólanum sem bjóða upp á marga möguleika í framhaldsnámi eftir stúdentspróf. Í skólanum er öflugt félagslíf sem stjórnað er af Nemendafélagi FL. Einnig er öflugt leiklistarlíf á Laugum en nemendur taka þátt í uppfærslum leikdeildar Eflingar.

Af hverju Laugar? Við spurðum nokkra nemendur af hverju þau hafi valið að koma í Framhaldsskólann á Laugum [lesa] |
 Árið 1945 gaf Helgi Benediktsson kaupmaður í Vestmanneyjum Laugaskóla vélar til kvikmyndasýninga. Sýningar hafa verið á Laugum allar götur síðan þó vélakosturinn hafi verið endurnýjaður. [meira]
|
|
|
|