| Flóamarkaður á Laugum |
| 10. maí 2010 | 17:21 |
Í fyrradag, laugardaginn 8. maí, mættu næstum 100 manns á flóamarkað á Laugum í Reykjadal, til styrktar Rauða Krossinum og Haiti. Fyrsta klukkutímann vorum við úti undir beru lofti en þurftum að flýja vind rétt fyrir klukkan þrjú, þegar ýmislegt var farið að fjúka um svæðið. Stemningin var skemmtilega létt, þar sem fólk var glatt, hlustaði á lifandi tónlist, gæddi sér á grilluðum bönunum og skoðaði það sem var í boði. Sumir fóru inn, þar sem hægt var að horfa á heimildamyndir um Haiti.
Það söfnuðust rétt um 35.000 krónur, sem og poki fullur af regnfötum safnaðist fyrir Haitibúa, þar sem regntímabil er að hefjast þar. Einnig voru rúmlega 50 leikföng handgerð af börnunum og unglingunum úr Litlulaugaskóla og Framhaldsskólanum á Laugum fyrir börnin á Haiti.
Þau föt sem voru ekki seld munu verða send í fatasöfnun Rauða Krossins.
Við þökkum öllum sem komu að markaðnum - bæði við undirbúning og svo eiginlega þátttöku.
Júlía Sigurðardóttir




|
| |
| Konráð Erlendsson |
| |
|
|
|