| 28 stúdentar brautskráðir á Laugum |
| 21. maí 2010 | 22:08 |
Hátt á fjórða hundrað manns voru viðstaddir brautskráningu 28 stúdenta frá Framhaldsskólanum á Laugum í dag. Þetta er stærsti stúdentahópur sem brautskráðst hefur frá skólanum frá upphafi. Ástæðu þessa óvenjulega fjölda má meðal annars rekja til þess að nokkrir höfðu lokið námi um síðastliðin áramót og biðu brautskráningar til vors og nokkur hópur hafði lokið námi sínu á þremur árum. Dagurinn hófst að venju með vel útilátnum morgunverði sem kennarar skólans bjóða stúdentsefnum upp á. Kennarar mæta snemma og steikja beikon, hræra egg, skera nýbökuð brauð og ávexti og njóta síðan síðustu samverunnar með nemendum sínum áður en þeir halda út í lífið. Klukkan tvö hófst svo skólaslitaathöfnin í Íþróttahúsinu. Skólameistari og áfangastjóri fluttu ræður ( Ræða skólameistara), fulltrúar afmælisárganga ávörpuðu samkomuna og Arnór Benónýsson las ljóð. Þá lék Selvadore Rähni á klarinett við undirleik konu sinnar Tuuli Rähni og fjórar stúlkur úr hópi nýstúdenta þær Arna Kristín Sigfúsdóttir, Gígja Valgerður Harðardóttir, Indíana Þórsteinsdóttir og Ragna Baldvinsdóttir sungu við undirleik tríós sem skipað var þeim Jaan Alavere, Pétri Ingólfssyni og Sigurði Illugasyni. Fjölmargar viðurkenningar voru veittar fyrir árangur í námi og félagslífi og voru þær kostaðar af fjölda velviljaðra fyrirtækja og stofnana (Viðurkenningar). Að lokum var öllum viðstöddum boðið upp á glæsilegar veitingar sem starfsfólk mötuneytisins annaðist undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá viðburðum dagsins.
















 |
| |
| Konráð Erlendsson |
| |
|
|
|